Blogg
19.4.2009
Bless og sællaður!
Það var einn morguninn þegar ég skrapp í bað, svo sem ekki í frásögur færandi en þegar ég kem upp aftur og Hörður Mar sér að ég er komin á svæðið aftur segir hann skælbrosandi og réttir mér höndina: "Bless og sællaður!" :D Ég sprakk úr hlátri!
Við höfum það annars ótrúlega gott. Hörður Mar var reyndar lasinn um daginn, byrjaði vikuna fyrir páska á lystarleysi og niðurgangi, smá uppköstum og svo tók við kvef, hálsbólga og væg eyrnabólga! En hann mætti í leikskólann eftir páska hress og kátur.
Páskarnir voru fínir þrátt fyrir smá veikindi, Nonni arkaði píslargönguna á 6 tímum, við Hörður Mar höfðum það gott í Skútahrauni á meðan:) Við gistum svo í Mývó og keyrðum til Húsó morguninn eftir. Ætluðum að vera tímalega í því þar sem ég ætlaði á blakæfingu kl 12 og lögðum af stað 10:30. Það hafði snjóað pínu í sveitinni en við ákváðum að skella okkur bara á Hólasandinn samt sem áður! Hefðum betur sleppt því þar sem það hafði verið svo mikill skafrenningur og snjókoma að sandurinn var ófær!!! Við gáfust samt ekki upp fyrr en við sátum föst í lengsta skaflinum, vorum þá búin að taka nokkra á ferðinni;) Pabbbi kom á Skúra og dró okkur út, svo snerum við við og fórum dalina. Vorum 2 klst á leiðinni en ég náði helmingnum af æfingunni!
En jæja, ég held að vorið sé loksins að koma! Við erum búin að fara 3 hvalaskoðunarferðir, sú fyrsta var á 2. í páskum. Ég fór mína fyrstu í fyrradag, sáum bara hnísur en alveg fuuullt af lundum! Ég vona svo að það fari að hlýna því það er ennþá allt fullt af snjó í bænum!!
Hörður Mar átti einn enn gullmolann um daginn. Hann vaknar þessa dagana alltaf á bilinu 6.30-6.45. Mér finnst það aðeins of snemmt, sérstaklega um helgar en svona er það bara! Einn morguninn þegar ég var að reyna að stela smá meira kúri, leyfði ég honum að leika sér í herberginu sem hann gerði góða stund, kom með ýmislegt dót til mín og fannst frekar sniðugt að fylla mömmurúm af drasli! Svo spurði ég hann hvort hann vildi ekki aðeins slaka á og kúra pínu hjá mömmu sinni? "Nei, vil ekki sofa lengi lengi" sagði sá stutti þá!! Þar með var það ákveðið og við drifum okkur á lappir!
Ok. Ég setti inn nýtt albúm frá því í apríl og annað er kannski á leiðinni! :)
Nú held ég að við Hörður Mar förum bara að drífa okkur út í góða veðrið!! (klukkan samt ekki orðin 9!)
Hafið góðan dag allir saman!

4.4.2009
"Takk fyrir komuna"
Í dag fórum við Stapabúar í langan og góðan göngutúr! Hörður Mar vaknaði reyndar kl. 6 í morgun og þeir feðgar fengu séð göngu uppúr kl. 8 og gáfu öndunum brauð. En við fórum svo öll saman eftir lúrinn hans Harðar (sem var 1,5 klst!!). Það var yndislegt veður og eftir stutt stopp í bakaríinu fengum við okkur kaffisopa hjá Hrólfi í Melstað. Hörður Mar vildi þó ekki stoppa lengi því hann hafði svo gaman að því að labba sjálfur! Þegar honum þótti hafa verið setið nóg sótti hann stígvélin sín og úlpu og vildi að við Nonni gerðum slíkt hið sama. Svo þegar allir voru komnir í skó og alles þurfti hann að "knúsa" Hrólf og Elke (sem var líka í heimsókn) bless. Þegar það var búið og um það bil sem hann var að gang út sagði sá stutti "takk fyrir komuna" án þess að nokkur annar hefði minnst neitt á það!! Hahaha ég sprakk úr hlátri!
Þá héldum við áfram göngunni og komum við í Brimbakka þar sem reyndar enginn var heima. En ákváðum þá að labba niðrí fjöru. Hörður Mar var þarna búinn að labba sjálfur frá bakaríinu og hélt áfram góðan spöl frá Brimbakka norður Mararbraut. Þá skelltum við honum í kerruna og brunuðum niðrí fjöru fyrir neðan Stapa. Þar fékk sá stutti að hlaupa um með skóflu og ýmist moka sandi oní sjóinn eða sjónum uppá land!
Þetta fannst honum ekki lítið skemmtilegt og óð annað slagið ansi ákveðið útí sjó... sem betur fer aldrei upp fyrir stígvélin... en það á hann eflaust eftir að gera oft í náinni framtíð!
Við komum svo heim í Stapa eftir 2ja tíma útiveru, afar hressandi! Um kvöldið fórum við svo í mat í Norðurhlíð. Hörður Mar hlustaði á afa sinn spila á munnhörpu og fékk að grípa í líka. Hann hafði reyndar ekki mikinn tíma til að borða eins og svo oft áður.
Klukkan var langt gengin í 8 þegar við náðum að sannfæra hann um að nú væri kominn tími til að fara heim í Stapa, hann knúsaði allt liðið og sagði "takk fyrir mig" og bætti svo við "takk fyrir komuna" og líka "takk kærlega"! Þetta var alveg bíó!
Eftir smá snarl hér heima, burstuðum við tennur og lásum Einar Áskell og sá stutti var ekki nema 3 mín að sofna! Enda langur og skemmtilegur dagur að baki.
(HM sofnar núna venjulega kl 8 og sefur oftast í einum dúr til 6.45. Stundum vaknar hann um 5 leytið og fær þá að koma uppí til mömmu og pabba.)
Á morgun er planið að skreppa uppí Mývó, Nonni þarf aðeins að pípa og við HM leikum þá bara við ömmu Siggu og kannski skreppum á Löngu-Strönd líka að hitta löngu-Hillu og langa-Bjöss eins og HM segir oftast.
Komið er nýtt mars albúm inn sem átti eiginlega að vera á undan hinu mars albúminu... Fjörumyndirnar eru frá því 22. mars en ekki í dag (engin myndavél með þá) en svona er skipulagið hjá mér þessa dagana;)
Ætla núna að fara að nálgast rúmið mitt, kannski með viðkomu í sófanum. En segi bara Lifið heil og sæl!
Þá héldum við áfram göngunni og komum við í Brimbakka þar sem reyndar enginn var heima. En ákváðum þá að labba niðrí fjöru. Hörður Mar var þarna búinn að labba sjálfur frá bakaríinu og hélt áfram góðan spöl frá Brimbakka norður Mararbraut. Þá skelltum við honum í kerruna og brunuðum niðrí fjöru fyrir neðan Stapa. Þar fékk sá stutti að hlaupa um með skóflu og ýmist moka sandi oní sjóinn eða sjónum uppá land!
Við komum svo heim í Stapa eftir 2ja tíma útiveru, afar hressandi! Um kvöldið fórum við svo í mat í Norðurhlíð. Hörður Mar hlustaði á afa sinn spila á munnhörpu og fékk að grípa í líka. Hann hafði reyndar ekki mikinn tíma til að borða eins og svo oft áður.
Klukkan var langt gengin í 8 þegar við náðum að sannfæra hann um að nú væri kominn tími til að fara heim í Stapa, hann knúsaði allt liðið og sagði "takk fyrir mig" og bætti svo við "takk fyrir komuna" og líka "takk kærlega"! Þetta var alveg bíó!
Eftir smá snarl hér heima, burstuðum við tennur og lásum Einar Áskell og sá stutti var ekki nema 3 mín að sofna! Enda langur og skemmtilegur dagur að baki.
(HM sofnar núna venjulega kl 8 og sefur oftast í einum dúr til 6.45. Stundum vaknar hann um 5 leytið og fær þá að koma uppí til mömmu og pabba.)
Á morgun er planið að skreppa uppí Mývó, Nonni þarf aðeins að pípa og við HM leikum þá bara við ömmu Siggu og kannski skreppum á Löngu-Strönd líka að hitta löngu-Hillu og langa-Bjöss eins og HM segir oftast.
Komið er nýtt mars albúm inn sem átti eiginlega að vera á undan hinu mars albúminu... Fjörumyndirnar eru frá því 22. mars en ekki í dag (engin myndavél með þá) en svona er skipulagið hjá mér þessa dagana;)
Ætla núna að fara að nálgast rúmið mitt, kannski með viðkomu í sófanum. En segi bara Lifið heil og sæl!
2.4.2009
Áður en langt um líður
Nú er einmitt ekki svo langt um liðið eða þannig frá því síðasta blogg var birt hér að kominn er tími á nýtt!!
Með tilkomu Facebook og bara almennri leti og dofa hefur bloggfærslum snarfækkað hér inni. En lengi er von á einni...
Hörður Mar er mikið að flýta sér að stækka og þroskast, talar óskaplega mikið og er duglegur að læra ný orð, bætir nokkrum nýjum við á hverjum degi. Það styttist óðum í að pjakkurinn verði 2 ára, eftir 2 mánuði tæplega! Vá hvað þetta líður hratt!
Í gær þegar ég var búin að sækja Hörð Mar á leikskólann neitaði hann að koma inn og það varð úr að við fórum í göngutúr með snjóþotuna. Hann tók það samt skýrt fram að hann vildi draga þotuna sjálfur! Við gerðum svo snjókall og hnuðuðumst í snjónum um stund.
En það er kannski ein ástæða þess að blogggfærslum hefur snarfækkað hér og hún er að Hörður Mar er ekkert sérlega hrifinn af því að þurfa að keppa um athyglina við þessa blessaða tölvu! T.d. er hann núna alveg viss um að það sé miklu skemmtilegra að lesa Plútó eða aðra Disneybók heldur en að blogga!!! Úúffff!
En ég setti inn nýtt albúm frá því í mars og vonandi tekst mér að koma fleiri myndum inn bráðlega!
Annars stórefast ég um að það séu margir sem koma hér við lengur... en það er þá bara allt í lagi:)
Lifið heil!

Herði Mar finnst fátt skemmtilegra en að sulla í vaskanum!

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 43
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 88806
Samtals gestir: 34330
Tölur uppfærðar: 12.3.2010 14:54:11
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)