Blogg

23.12.2008

Þorláksmessublogg

Tíminn æðir svo áfram... það hlýtur að vera nokkuð góðs viti, merki um að það sé gaman!
Enda er gaman, jólin eru á morgun og allir hlaupa nú um víðan völl að redda síðustu jólagjöfunum, sækja fötin í hreinsun, jafnvel koma síðbúnum jólakortum í póst... *hóst* En það er stemning yfir þessu og ég er alveg að detta í jólagírinn!

Það er búið að vera mjög gaman á aðventunni hjá okkur, Hörður er að fíla í botn allt þetta jóla-dót, hann bætir þessu forskeyti við ýmis orð... jólasnjókall, jólabók, jólahreindýr... og hitt og þetta sem er jóla- þessa dagana. Hann er mjög hrifinn af öllum jólaljósunum og á eflaust eftir að hafa gaman af jólatrénu!!
Hann hefur líka kynnst jólasveinunum lítillega en einn slíkur kom einmitt í heimsókn í Stapa í gær!! Það var mjög gaman, Hilmar Sær var í heimsókn (tilviljun?) og þeir höfðu gaman af sveinka sem gaf þeim mandarínur!!

Ég er enn í vinnunni og Nonni vinnur fram að hádegi á morgun! Við ætlum svo að vera í Mývó á morgun og Hildur sæta systir er komin frá Sverige og verður með okkur líka! GAMAN saman á jólum.

Held ég hafi þetta ekki lengra, ég er amk búin að blogga smá fyrir jólin og það sem meira er... daddara... það eru komin 3 ný albúm inn!!!! Váá hvað ég er dugleg! og þessi albúm koma nú alveg næstum í stað góðrar bloggfærslu, er búin að skrifa við myndirnar og alles:)

Við segjum þá bara:


Gleðileg jól og farsælt komandi ár emoticon

Hafið það sem allra best kæru vinir!
Þórunn, Nonni, Hörður Mar og Lilja

Skrifað 23.12.2008 kl. 10:52 af Þórunn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 43
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 88806
Samtals gestir: 34330
Tölur uppfærðar: 12.3.2010 14:54:11