Blogg
27.10.2008
hmmm...
Ég var búin að lofa færslu hér og þegar ég loksins var búin að koma mér vel fyrir fyrir framan skjáinn var búið að loka á aðganginn minn á bloggið þrátt fyrir að ég væri búin að borga! Æi maður á víst að senda tilkynningu á eitthvað netfang en ég er ekkert góð í því að lesa smáaletrið! og því gat ég ekki sett neitt hér inn fyrr en nú:)
En það er kominn snjór og kreppa en hvort tveggja var nú viðbúið held ég. Það þýðir ekki að leggjast niður og væla, það verður að halda áfram að lifa og ég held að þetta verði á endanum bara allt hið besta mál! Við lærum að lifa með aðstæðum og þurfum kannski aðeins að hugsa upp á nýtt hvað það er sem skiptir máli í lífinu! Ég veit að ég er amk heppin, hef allt sem ég þarf og meira til, hef nærri því alla fjölskyldu mína nálægt mér (nema Hildi mína) hef frábært þak yfir höfuðið og allir eru við góða heilsu! Er hægt að biðja um eitthvað meira??
Hörður Mar þroskast hratt og lærir ný orð á hverjum degi. Hann er alltaf kátur að fara í leikskólann en hleypur líka glaður á móti mér þegar ég sæki hann! Yndislegt að fá knús frá þessum litla manni!
Í morgun vaknaði hann fyrst kl. 6 en eftir að við útskýrðum fyrir honum að það væri ekki kominn dagur, það væri ennþá nótt og allir ætluðu að lulla lengur lagðist hann niður hjá Skotta (kisunni okkar) og sofnaði aftur og svaf til 7.30! Sem var reyndar heldur lengi því þá þurftum við að haska okkur á fætur. En það er svo mikið hægt að spjalla við hann núna, alveg ótrúlegt!
"You talkin' to me?"
Mamma hjálpaði mér um daginn að klippa strákinn. Síðast fór ég með hann á klippistofu og það var bara ekki að gera sig svo við gerðum þetta bara heima, ég las fyrir hann bækur á meðan og mamma klippti á fullu en honum fannst það frekar leiðinilegt! 
Hér eru þeir frændur saman í Stapa og Hörður Mar nýklipptur og fínn!
Þeir eru alltaf svo góðir og glaðir saman. 
Við fórum að sigla um daginn á litlu Sæbjörgu. Höfum gert það nokkrum sinnum í haust og Herði Mar finnst það æði!! Hann biður afa sinni stundum um að fá að fara á bátinn og sem betur fer er það oftast ekki mikið mál að skella sér í smá siglingu.

Hér var reyndar alveg logn svo það þurfti að nota árarnar en það er ekki síðra.
Held ég hafi þetta ekki lengra í bili en það er komin hrúga af nýjum myndum í albúm svo tékkið á því:)
Við segjum bara yfir og út og haldið ykkur fast
Thorinsky
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

