Blogg
23.9.2008
Haust
Kominn tími á haustblogg sagði einhver réttilega!
Það væri fínt ef þetta gerðist örlítið meira af sjálfu sér... nú en það þýðir líklega lítið að fara fram á það!
Það sem helst er að frétt síðan síðast er að Hörður Mar er orðinn "stóri" frændi og Hilmar Sær, stóri frændi Harðar er orðinn stóri bróðir!! Heimir og Guðrún eignuðust lítinn strák þ. 4. sept. sl. Til hamingju með það elsku Heimir, Guðrún og Hilmar Sær! Hann er algjör dúlla og alveg ótrúlega líkur Hilmari Sæ þegar hann var af svipaðri stærð
Við Nonni fórum í viðtal á leikskólanum hjá Herði Mar í síðustu viku. Drengurinn fékk alveg ljómandi góða umsögn og hefur allt gengið svo dæmalaust vel, jafnvel þó að í sumar hafi verið miklar mannabreytingar og starfið frekar frjálslegt. Honum var líka hrósað mikið fyrir hvað hann er duglegur að tala! Það er líka alveg ótrúlegt hvað drengurinn getur tjáð sig!! Hann reynir að herma allt eftir manni og ég er fyrir löngu búin að missa tölu á orðunum sem hann kann! Nýjustu orðin eru t.d. Bíddu og Jáá!
Við fengum líka að vita að frá og með næstu mánaðarmótum fær HM að vera frá 8-16 í stað 8-14 sem er hið besta mál! HM finnst gaman í leikskólanum og ég get unnið aðeins lengur.
Um síðustu helgi kom Hilmar Sær í stutta heimsókn, fékk að leika við Hörð Mar meðan pabbi hans var að vinna. Þeir voru svo duglegir að leika saman frændurnir bæði hér heima og svo röltum við á leikvöllinn sem er hér steinsnar frá. Hilmari Sæ fannst ekki leiðinlegt að keyra litla frænda í vagninum...
Á sunnudaginn var svo smá matarboð í Stapa, Hrólfur bauðst til að koma með mareneraðar lundabringur og kartöflugratín og svo lagði ég til salat og sitthvað fleira. Gestir voru Þórdís, Huld og Jói + Margrét litla og Helga vinkona mömmu og pabba sem býr nú í Hafnarfirði. En þetta var líka svona ljómandi góð lundaveisla og ekki spurning að það má ekki líða of langur tími í næsta matarboð!
Á sunnudaginn fórum við líka að taka upp nokkrar kartöflur fyrir afa hans Nonna. HM fannst heldur of hvasst úti svo Lilja Björg og Elín vinkona hennar léku við hann inní bíl mestan tímann meðan við Nonni hömuðumst í moldinni... alltso við að taka upp jarðeplin!
En svo fara haustliðirnir að detta inn, kórinn byrjar t.d. í kvöld og blakið í þessari viku. Svo það þarf að fara að dusta rykið af íþróttaskóm og nótnablöðum!
Þá held ég að haustfréttir verði ekki fleiri að sinni en aldrei að vita nema ekki verði langt að bíða næsta fréttapakka.
Hörður Mar og Hilmar Sær að borða popp í tjaldinu hans Harðar!!

Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 24
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 89134
Samtals gestir: 34413
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 11:37:17
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)