Blogg

30.8.2008

Síðsumarsblogg

Jæææja þá!
Ætla að prófa að setja inn smá fréttir hér, það hefur víst ekki verið mikið gert af því í sumar!
En innflutningurinn gekk vel og við erum himinsæl með lífið í Stapa  Auðvitað er hitt og þetta sem er enn óklárað en það er nægur tími til að dunda sér við það. Við erum ekki að fara neitt á næstunni.
Þetta er náttúrulega svo mikil snilldar staðsetning hérna á Höfðaveginum, afar stutt í vinnuna, bæði fyrir mig og Nonna, stutt í búðina og leikskóla svo að bílar hafa sáralítið verið notaðir í sumar. Ekki verra að spara nokkrar kr í bensínkostnað:)

Hildur og Sebastian bjuggu hjá okkur í sumar en þau eru einmitt á leiðinni út til Sverige í dag og ætla að búa og stúdera í Gautaborg í vetur! Hildur er komin inn í nám sem heitir Alþjóðafræði og lítur út fyrir að vera mjög spennandi. Man ekki alveg hvað Sebastian er að læra. En það var alveg frábært að hafa þau hjá okkur í sumar, takk fyrir samveruna elsku þið!

Það er búið að vera mjög mikið að gera í vinnunni í sumar, fullt af ferðamönnum, reyndar fleiri en nokkru sinni og veður og hvalir alveg staðið undir væntingum.

Nonni er ekki heima núna því hann skrapp til Svíþjóðar með Gospelkórnum og héldu þau tónleika í Gautaborg í fyrradag. Svo held ég að þau séu að leika sér í tívolí í dag og svo er heimkoma á morgun.

Hörður Mar er búinn að fara fyrstu heimsóknina sína á bráðamóttöku með gat á hausnum!! 19. ágúst var hann hér heima að brasa eins og venjulega og ég vissi ekki fyrr af en hann lá á grúfunni á gólfinu við hliðina á sófanum og þegar ég tók hann upp fossaði blóð úr andlitinu á honum! Mér brá alveg svakalega því ég sá ekki strax hvaðan blóðið kom en þetta reyndist vera skurður rétt fyrir ofan vinstra augað. Ég rétti Nonna strákinn, greip teppi og bíllyklana og við rukum út í bíl. Á leiðinni uppá heilsugæslu hringdi ég í 112 og bað um samband við vakthafandi lækni á Húsavík því kl. var 7 um kvöld. Læknirinn beið svo eftir okkur í anddyrinu og mótttökurnar voru sko fyrsta flokks! Vanur maður á ferð og náði að róa mömmuna smá sem var í algjöru sjokki!! Svo þurfti að sauma þann stutta 4 spor! Nonni hélt höndum og fótum og ég höfðinu og svo var bara að bíta á jaxlinn því barnið grét og öskraði nær stanlaust og mamman grét með! En Hörður Mar var fljótur að jafna sig og þegar búið var að sauma var hann fljótlega farinn að leika sér og hlaupa um eins og ekkert hefði gerst! Hann hefur líka næstum alveg látið skurðinn í friði en hann þarf að hafa plástra í 1.5 viku í viðbót!

Hann fór svo í vikunni í klippingu á stofu og það fannst honum heldur betur slæm hugmynd! Ég held að það hafi minnt hann á þegar læknirinn var að sauma'nn um daginn. Svo ég held að ég leyfi honum bara að safna hári næstu mánuði!

Annars held ég að ég hafi þetta ekki mikið lengra núna og láti frekar myndirnar tala í nýjasta albúminu!
Vona að sumarið hafi farið vel með ykkur og þið vel með það!

Þar til næst.

Skrifað 30.8.2008 kl. 11:28 af Þórunn

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 54
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 37
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 89082
Samtals gestir: 34393
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 13:03:34