Blogg

22.6.2008

Sumarsólstöður

Júní flýgur áfram, maður hefur varla undan að telja dagana!

Herði Mar fer það bara ljómndi vel að vera orðinn 1 árs! Fyrir um viku síðan byrjaði hann á því að standa upp sjálfur á miðju gólfi og ganga nokkur skref til mín  Síðan þá hefur hann haft mjög gaman af því að prófa sig áfram að labba sjálfur, ótrúlega fyndið að fylgjast með þessum tilraunum!

3. júní byrjaði HM í aðlögun á leikskólanum, og á tæpri viku var hann búinn að ná tökum á leikskólalífinu... er reyndar farinn að vola pínu þegar mamma vinkar bless á morgnana en það stendur aldrei yfir nema í örfáar mínútur! Það er ótrúlegt hvað hann er búinn að læra og þroskast mikið á þessum 3 vikum í leikskólanum, leikur sér mikið sjálfur og farinn að reyna að babbla ýmis orð. Greinilegt að það er afar örvandi fyir þau að fara á leikskóla:)

HM og Hilmar Sær eru líka alltaf að kynnast betur og betur, þeir verða alltaf svo glaðir þegar þeir hittast og leika sér fallega saman þó auðvitað gangi ýmislegt á hjá þeim og veitir ekkert af að hafa amk eina ömmu á eftir þeim!

Það hafa bæst við nokkrar tennur og nú síðustu viku hefur HM verið frekar slappur vegna þess, hiti, uppköst og niðurgangur svona í bland en það sér sem betur fer fyrir endann á því núna! Enda erum við að hugsa um að fara í sund í sólinni!

Stapavinna gengur vel og nú erum við komin með dagsetningu á innflutning, það verður 5. júlí sem familían flytur í Stapa og ekki degi seinna!! vonandi fyrr! En frekari fréttir af því koma hér inn þegar þurfa þykir og ekki orð um það meir!

Ný albúm eru komin inn og fleiri á leiðinni von bráðar,
farið ekki langt!
Þórunn

Hér eru þeir frændur að fara með ömmu Siggu á rúntinn!

Skrifað 22.6.2008 kl. 12:16 af Þórunn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 43
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 88806
Samtals gestir: 34330
Tölur uppfærðar: 12.3.2010 14:54:11