Blogg
30.5.2008
Afmælisstrákur!
"Hann á afmæli' í dag..."
Ótrúlegt að litli drengurinn sé orðinn 1 árs!
En það er víst staðreynd dagsins! 
Til hamingju með daginn elsku Hörður Mar okkar *kyss kyss* 
28.5.2008
Sumarsæla
Jahér... haldiði að maí sé ekki bara að verða búinn og engin færsla komin þann mánuðinn! Fuss! En batnandi bloggara er best að blogga 
Það gekk sum sé mjög vel á blakmótinu fyrir vestan, við náðum að halda okkur uppi í 1. deildinni, unnum 2 leiki af 6 og tapleikirnir voru yfrleitt mjööög jafnir, fórum í odd í nokkrum og vorum oft að tapa með einu stigi! (fyrir Bertu: töpuðum 24-25 í báðum hrinum fyrir Þrótti R
) Þetta var hrikalega gaman og ekki spurning að ég stefni á að vera aftur með í blakinu sem byrjar í haust og næsta öldungamót er svo á Egilsstöðum!
Það gekk líka svo ljómandi vel hjá feðgum hér heima á meðan, Hörður Mar var ekkert svo súr þó hann fengi ekki brjóst og var bara duglegur hjá pabba sínum. Næturnar eru líka bara snilld núna, hann sofnar um 9 og sefur yfirleitt til 7-8 og oft alla nóttina í sínu rúmi! Fær þó stundum að koma uppí um 5 leitið
og kúra hjá mömmu sem finnst það ekki vont heldur!
Í fyrradag fórum við Nonni í innritunarviðtal í leikskólann, litli maðurinn á sum sé að byrja í aðlögun eftir helgi, á þriðjud. nánar tiltekið. Okkur leist vel á leikskólann, hann verður á deild sem heitir Vilpa og þar mun hann amk kannast við eina stúlku sem byrjar á sama tíma en það er Guðrún Halla hennar Díönu! Það verður bara spennandi!
Ég er byrjuð að vinna smá, hef tekið eina og eina ferð nú í maí og unnið aðeins á skrifstofunni líka. Það er bara hressandi og ég held að það verði fínt að byrja aftur að vinna! Mamma hefur þá verið með Hörð yfirleitt og stundum hefur hann verið að "hjálpa" henni í miðasölunni!
Stapi gengur líka fínt núna, stiginn klár (VEEEIIII!) og báðar svalirnar komnar með handrið og pall!! flísalögn að verða búin og eldhúsinnrétting komin vel á veg! Rafmagn líka! En það er slatti eftir og vonandi heldur þetta áfram að ganga svona vel svo við komumst inn í júní!
Hörður Mar er orðinn svo duglegur að labba með öllu og skríður um á fullu, hann hefur sleppt sér smá og tekið nokkur skref en er ekki alveg nógu kjarkaður enn til að fara að labba sjálfur... en það kemur!
Svo er það 1 árs afmælið á föstudaginn!
Ætli við höfum ekki smá afmæliskaffi fyrir fjölskylduna, það er ómögulegt annað!
Nú er hins vegar sá stutti að verða heldur leiður á því að mamman sitji við tölvuna... vill fá athygli og því segi ég þetta gott í bili, set inn myndir við fyrsta tækifæri!
Veriði ljúf og góð í góðaveðrinu...
Thorinsky out!
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

