Blogg
30.4.2008
11 mánaða!
Herði Mar fer svo hratt fram þessa dagana, í gærkvöldi var hann sko í stuði, babblaði stanslaust og sprellaði eins og grínisti. Hann segir núna "mamma" mjög skýrt þegar hann er beðinn um það (og stundum óbeðinn líka) og ég bráðna niðrí gólfið í hvert sinn! Hann segir líka "babba" skýrt og greinilega og í gærkvöldi reyndi hann að segja Lilja og náði því ótrúlega vel. "Dah" segir hann ef eitthvað dettur og "daaa" þegar hann vill segja takk og er í "gerðusvovel-takk" leiknum. Hann er líka alveg með það á hreinu að þegar Tóti bangsi situr með honum við matarborðið að hann þarf líka að fá að súpa og réttir honum stútkönnuna sína á milli þess sem hann fær sér sjálfur að drekka. Tóti hefur líka fengið að smakka graut og máta sólgleraugun hans HM.
Um daginn heimsóttum við Langömmu-Dúddu og hún fékk líka að prófa sólgleraugun hans Harðar Mars og honum fannst það ekki lítið gaman:) (sjá myndir hér að neðan)
En það er líklega best að halda áfram að þvo þvott og þurrka svo ég geti byrjað að pakka í kvöld því brottför er 7:30 í fyrramálið. Við keyrum til Ak og tökum leiguflug þaðan beint til Ísafjarðar. Vonandi verða engar seinkanir því við eigum fyrsta leik kl. 11 á Bolungarvík og allt verður að gang upp til að við náum honum!!! Fyrir áhugasama set ég hér linkinn fyrir mótið: http://www.hsv.is/skellur/?ldungamt og á http://www.blak.is/ er hægt að skoða liðin og fylgjast með leikjum. Mitt lið er Völsungur A í 1. deild (gúlp) og svo erum við líka með lið í 3. deild, kallarnir eru svo í 2. deild. Tékkið á þessu:)
Held ég sé komin með pakkkvíða og því best að fara að athuga málið!
Veriði stillt og prúð

26.4.2008
Gleðilegt sumar!
Gleðilegt sumar kæru vinir!
Það er samt ekkert sumarlegt úti í dag, slydda og kuldi en vonandi stendur það til bóta!
Hörður Mar er búinn að vera pínu lasinn undanfarna daga, fékk væga eyrnabólgu í annað eyrað og ég fór 2x með hann til læknis, í bæði skiptin var það Ingimar Hjálmars og hann ráðlagði í fyrra skiptið að bíða í 2 daga og sjá hvort hann myndi vinna á þessu sjálfur án þess að fá sýklalyf. Við biðum því í tvo daga og var Hörður Mar með vægan hita og talsvert nefkvef með þessu. En eftir þessa 2 daga þegar við hittum Ingimar aftur var bólgan miklu betri svo við sluppum við sýklalyfin!! Jeeeií! Sem betur fer:) HM er svo allur að koma til núna, kominn með matarlystina aftur og niðurgangurinn á réttri leið líka!
En það eru líka komnar 2 nýjar tennur!!
báðar niðri og því eru tönnslurnar núna 8 talsins! Herði Mar finnst það sennilega ekki eins skemmtilegt og okkur foreldrunum því þá þarf að bursta fleiri tennur og tannburstun er sennilega það leiðinlegasta sem hann veit... amk enn um sinn!
Það eru stór tímamót í vændum fyrir litla manninn: Mamman er að fara í burtu í 4 daga í blakferð og þá verður líklega bundinn endir á 11 mánaða farsæla brjóstagjöf!!! Núna fær hann bara brjóst 1-2svar á sólarhring, fyrir svefninn og svo undir morgun (ca. milli 5 og 7) en við stefnum að því að hætta morgungjöfinni áður en ég fer og kvöldgjöfin fer svo sjálfkrafa út þegar pabbinn verður einn með drengnum!
Vonandi gengur það allt saman vel og ég er eiginlega alveg sannfærð um það því HM hefur sýnt svo miklar framfarir síðustu daga og vikur.
Í gær skruppum ég og mamma til Akureyrar að velja flísar í húsið. Vorum búin að kaupa flísar sem við svo skiluðum þar sem þær voru gallaðar! Enda ódýrustu flísar sem við fundum. En í þetta skiptið fórum við í Egil Árnason á Ak og fundum ljómandi fallegar og vandaðar flísar. Á gólfið völdum við brúna flís, 30x60 og á veggina hvíta/matt með smá hrukkumynstri. Ég er miklu sáttari við að vera komin með vandaðar flísar því þó þær kosti nokkuð meira en hinar þá er maður öruggari hvað varðar lekavarnir og slíkt. Svo líka það dýrt að leggja þetta að það borgar sig ekki að vera með eitthvað drasl sem maður verður leiður á eftir nokkur ár!
Það er sem sagt flísalögn framundan í Stapa en líka málning/lökkun á gluggum. Hitakerfið er allt klárt, Nonni búinn að græja það með stæl, komin þessi fína hitastýring svo núna fer nær ekkert vatn í upphitun og því greinilegt að kyndikostnaður verður nánast enginn í húsinu!!
Stiginn er loksins kominn til landsins (var smíðaður í Svíþjóð) og vonandi geta Reinarmenn sett hann upp sem allra fyrst! Vááá hvað ég hlakka til að sjá stigann í húsinu! ekkert lítið búið að spá í þessum stiga:)
Jamm... ætli það verði ekki innflutningur í júní... þetta tekur allt svolítið lengri tíma en maður vill að það geri!
Kemur allt með kalda vatninu.
Annars erum við nokkuð hress og við vonum að þið séuð það líka! :)
Ég setti inn nýtt albúm en það er ennþá eitthvað klunn í kerfinu svo albúmin eru öll í rugli... vonandi lagast það sem fyrst:)
Yfir & út
(HM ný kominn úr baði og sýnir hér hvað hann er stór)
6.4.2008
Bladíbla
Við höfum það mjög gott hér í vetrarríkinu á Húsavík, það er ennþá talsvert mikill snjór í bænum og alltaf verið að bæta í annað slagið. Skíðalyftan búin að vera opin í nokkra daga en enginn af mínu heimili nýtt sér það! Ég væri alveg til í að það færi að koma vor og snjórinn léti sig bara hverfa!! En það er ekki ég sem stjórna því.
Herði Mar hefur farið ótrúlega mikið fram síðustu daga, nú "skríður" hann um allt á rassinum með annan fótinn fyrir framan sig og hinn fyrir aftan og af og til fer hann alveg upp á hnén. Hann reisir sig upp við alla skapaða hluti og gengur örlítið með og er ekki lítið montinn með sig!
Hann er líka búinn að læra að klappa saman lófunum og sýnir stundum hvað hann er sterkur... hihi:) Það er ótrúlegt hvað hann unir sér betur einn að dunda núna þegar hann getur farið um og hurðir og skápar eru vinsæl dægrastytting.Einnig er hann orðinn miklu duglegri að borða mat, fær bara brjóst á morgnana og kvöldin (og pínu á nóttunni... *hóst*) en þess á milli stoðmjólk og vatn og er alveg sáttur við það.
Svo líður að því að ég fari á öldungamót BLÍ (Öldungamót Blaksambands Íslands) sem haldið verður á Ísafirði 1.-4. maí. Nonni verður þá náttlega með Hörð Mar og ég stefni að því að brjóstagjöf ljúki þá!! ;) Held það verði bara fínt að nota þetta tækifæri því svo líður að því að hann fari á leikskólann (aðlögun í endann maí vonandi) og þá verður ekkert mömmubrjóst til að grípa til...
Það verður líka spennandi að sjá hvernig gengur á mótinu. Við förum með tvö lið og annað er í 1. deildinni... úff... kannski við vinnum eina hrinu eða svo?! Það kemur allt í ljós. Spennandi að fara vestu líka, síðast þegar ég var á Ísafirði var ég veðurteppt í fleiri fleiri daga! Vona að það gerist nú ekki í þetta sinn enda að koma sumar!
Læt þetta duga að sinni.
Góðar stundir.
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

