Blogg
20.3.2008
Örfrétt
Smá update hér.
Við ætlum uppí Mývó á morgun, Nonni ætlar að ganga píslargönguna og ég og Hörður Mar ætlum að vera hjá ömmunni og afanum í Skútahrauni! Ég set inn myndir á laugard. en þangað til segjum við bara:
Gleðilega páska allir saman!!


mamman og Hörður Mar á LangömmuStrönd síðustu helgi
Hörður Mar fékk sólgleraugu í vikunni því það var svo bjart í sólinni.
Algjör töffari sko! 
12.3.2008
Upprisan
Þá eru veikindin afstaðin og það besta er að þau koma aldrei aftur!! Og hér með afþakka ég allar flensur og kvefpestir!
Hörður Mar fékk sem betur fer bara væg einkenni, kvef, hita og hósta. Hóstinn er reyndar enn að stríða okkur á nóttunni en vonandi fer það nú að lagast.
Það var ótrúelga gott að komasta aftur út að labba með vagninn og vonandi verður veðrið bærilegt næstu daga svo við getum komið okkur í "form" aftur:)
Annars er Hörður Mar allur í því að vinna í því að komast í gönguform... kannski hann stefni á Píslargönguna um páskana... a.m.k. er það aðal sportið núna að standa upp við alla skapaða hluti, borðstofuborðið og lítið hjólaborð eru þar í uppáhaldi og hefur hann nokkuð oft náð að standa upp alveg sjálfur (mamman er reyndar alveg tilbúin að grípa ef illa fer). Hann hefur því ennþá minni áhuga á að læra að skríða en áður og mátti nú ekki við því! hmm... ætli hann sleppi því ekki bara og byrji fyrst að ganga. Lemur í kjós!
Við fengum bréf um daginn þar sem Herði Mar var boðin leikskólavist frá 1. júní! :o) og hann byrjar í aðlögn einhvern tíman í maí! Ég er ekki alveg að fatta hvað það er stutt þangað til og mér finnst hann ekkert tilbúinn til að fara á leikskóla; kann ekki að skríða og taktarnir við matarborðið eru nú ekkert frábærir hjá honum ennþá! En það eru ennþá nokkrar vikur til stefnu og við vinnum markvisst í málunum:)
Honum ætti a.m.k. ekki að verða kalt á eyrunum ef hann fær mömmuhúfu lánaða...hihi:)

Í gær skruppum við Hörður Mar í heimsókn til Hilmars Sæs og mömmu hans! Langt síðan frændurnir höfðu hist því Heimir og Guðrún voru í Barcelona í helgarferð og Hilmar Sær í Reykjavík hjá ömmu sinni og afa. Þeir voru frekar flottir saman og Hilmar sýndi Herði hvernig það er að vera yngstur og láta eldri tuskast með sig... hihi;) En hann var samt svo góður við litla frænda, tók utan um hann með báðum höndum og knúsaði lengi! Ekkert smá sætt!! Svo léku þeir "saman" í dótinu og Hilmar Sær sýndi Herði Mar hvað hann er orðinn duglegur að labba! Labbaði nokkrum sinnum milli mín og Guðrúnar og var ekki lítið montinn með sig!! Hörður horfði á með öfundaraugum;)
En jæja, vonandi eru þið öll sæmilega frísk og frjáls frá flensu.
Segjum það í bili:)
2.3.2008
Ó Vei mér!
En sem betur fer er heilsufarið aðeins að skána í dag og geðheilsan bara öll að koma held ég

Vá hvað það er leiðinlegt að vera lasin svona marga daga í röð...
Ég held ég prófi jafnvel að fá mér flensusprautu næsta ár!!
Áður en veikindin skullu á höfðum við m.a. tekið þátt í skírn Ingu Maríu hennar Guðnýjar og Krzyzstof og var það hinn besti dagur. Ég hef sett inn albúm þar sem sjá má myndir af skírninni og einnig þegar frændur Hörður Mar og Hilmar Sær skruppu í sund saman:)
En ég held ég láti þetta duga að sinni og haldi áfram að sópa saman heilsunni!
Yfir og út,
Þórunn lasarus

Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

