Blogg
18.2.2008
Tannablús
En þetta er sem betur fer allt á réttri leið, tennurnar eru að gæjast niður hver af annarri og hann er orðinn hitalaus og miklu líkari sjálfum sér!
(Hann æfir sig nú í að lemja húðir og hver veit nema hér sé kominn hinn sanni "Litli trommuleikarinn")

En prinsinn er vaknaður núna og vill fá athygli svo við látum þetta gott heita að sinni. Við erum að pæla í að fara í sund seinni partinn með Hilmari Sæ frænda! :)
Biðjum að heilsa,
Þórunn og litli Tannálfurinn
7.2.2008
Fréttaskot úr Norðurhlíð
Jamm og já! Langt síðan síðast og margt hefur gerst. Þess á meðal er fyrsta ferðalag Harðar Mars en við brugðum okkur til Reykjavíkur í verslunarleiðangur fyrir Stapa!
Ég, Hörður Mar og mamma fórum keyrandi á þriðjud. 29. jan og Nonni kom svo keyrandi 31. með pabba. En við fórum sum sé búð úr búð úr búð úr búð... til að finna hitt og þetta í slotið og á endanum náðum við góðum árangri! Festum kaup á 1 eldhúsinnréttingu, 1 baðinnréttingu, leðurtungusófa, borðstofuborði, sófaborði og hugsanlega 2 fataskápum (eigum eftir að ákveða hvort við tökum þá). Þar að auki fundum við ljós yfir borðstofuborðið og morgunverðarskenkinn:)
Við fengum að gista í gestaíbúð sænska sendiráðsins sem er í kjallara sendiherrabústaðsins á Fjólugötunni. Það var ótrúlega næs að geta verið út af fyrir okkur þar og ráðið okkur alveg. Hörður Mar var ótrúlega duglegur og meðfærilegur, litla skinnið, hann hafði fyrir þessa ferð aldrei farið lengra í bíl en til Akureyrar og bara einu sinni sofið annars staðar en heima hjá sér. En hann tók þessu brölti öllu með miklu jafnargeði og sólskinsbrosi! 
Þessa dagana (og marga á undan og eflaust marga í viðbót) er Nonni öllum stundum í húsinu og þar eru einnig iðnaðarmenn (smiðir + rafvirkjar) að bardúsa. Nú er verið að klæða með gifsi og miðhæðin að mestu klár, risið langt komið og byrjað á kjallaranum! Svo það er fullt að gerast en mér finnst einhvern vegin að eftir því sem að meira klárast því fleiri smáverk séu eftir... hmmm... veit ekki alveg hvernig á að útskýra, kannski er það bara þannig að eftir því sem meira vinnst, þeim mun lengra fram á veginn horfir maður
En þetta hlýtur að klárast einhvern tíman! 7, 9, 13, og ekki orð um það meir!
Hörður Mar er orðinn rúmlega 10 kg og 73cm. Hann situr núna án hjálpar og er ótrúlega duglegur við að brasa í dótinu sínu. Nema þegar hann veltur/veltir sér á magann þá er hann ekki sáttur! HOnum finnst ekki gaman að skríða, nær þó að mjaka sér töluvert úr stað aftur á bak! Hann reynir stundum að reisa sig upp við hluti en er ekki farinn að ganga með eða neitt þannig. Hann sýnir stundum hvað hann er stór þegar hann er spurður eftir því og horfir á ljósakrónuna þegar hann er spurður hvar ljósið sé. Svo er hann bara svo yndislega glaður alltaf (nær alltaf) og brosir sínu breiðasta svo glittir í báðar tennurnar
Hann er ekkert sérstaklega áfjáður í að borða mat, cheerios og brauð með smjöri er helst hægt að fá hann til að maula en oftast ef hann sér skeið með einhverju gumsi í herpast varirnar fast saman af mikilli ákefð! Mömmubrjóst er best segir hann og drekkur meira að segja enn á nóttunni!!! (mamman fer að vinna í því þegar hann verður orðinn duglegri að borða venjulegan mat)
Annars fer óskaplega vel um okkur hér í Norðurhlíð og ekki yfir neinu að kvarta!
Ég setti inn nýtt albúm með mööörgum myndum af hinu og þessu! (aðalleg Herði Mar samt!)
Vona að vonda veðrið sé ekki að fara illa með ykkur, það er reyndar alls ekkert vont hér á Húsavík núna;)
Hafið það ljúft öll sömul í helginni:)
(Já það er svo sannarlega gaman í IKEA)
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

