Blogg
19.1.2008
Þessi fallegi dagur!

Og Hörður Mar stækkaði líka! Við fengum okkur morgunmat saman, ég brauð og Hörður Mar graut, samt fannst honum grauturinn ekkert góður og vildi frekar tína upp í sig nokkur Cheerios!
Myndir af því og fleiru komnar í albúm! Líka eitt nýtt myndband af drengnum við Cheeriosát:)
Jæja, Hörður Mar vill fá athygli mína óskipta!!
Svo er það bara blótið í kvöld!
Góðar stundir góðir hálsar:)
(HMJ að borða Cheerios)

9.1.2008
Flutningar!
Flutningarnir gengu barasta vel og íbúðinni verður tekin út í dag eða á morgun. En það var flókið að pakka saman dótinu... úff en nauðsynlegt og gagnlegt að fara í gegnum allt draslið og henda, setja í geymslugáminn eða taka með okkur í Norðurhlíð.
Það fer ljómandi um okkur hér í Norðurhlíðinni og vonandi mun fara eins vel um þau öll í Grundargarðinum þegar þau verða flutt.
Hins vegar þurfti Inga María, litlan þeirra Guðnýjar og Krzyzstof að fara inná Ak í aðgerð! Í gærkvöldi fóru þau með hana til læknis hér á Húsavík og það kom í ljós að hún var kviðslitin... Litla greyið, með þvílíkar kvalir!! En það átti að skera hana núna fyrir hádegið, ég á enn eftir að fá fregnir af því hvernig gekk. Læt ykkur vita.
Hörður Mar er hins vegar hinn hressasti, alveg búinn að ná sér af kvefinu og mér sýnist að þetta rót hafi ekki svo mikil áhrif á hann! Hann sefur svipað og áður og er svipað lélegur að borða! Frussar matnum yfirleitt út úr sér og grettir sig og hlær:) Algjör gaur!
Ég setti inn nýtt albúm með myndum frá þessum fyrstu dögum ársins:)

(takið eftir tönnunum)
Verið nú stillt og góð.
ÞH & HMJ
1.1.2008
- Tvöþúsundogátta -
Gleðilegt ár öll og takk fyrir gamla 
Nýjársdagur upprunninn og prýðis áramótagleði að baki. Við borðuðum saman með fjölskyldunni á Gamla Bauk (í Skipó) þar sem við vorum svo mörg. Áváðum því að leggja saman í matarpúkk og slá upp stórveislu:) Það tókst ljómandi og vorum við 17 stykki held ég!
Hörður Mar stóð sig ótrúlega vel og var hress og glaður allan tíman þrátt fyrir lítinn svefn, hóstinn er ennþá að trufla hann og því náði hann ekki að sofa nema 2x 10 mínútur allt kvöldið!!
Hér er hann í Skipó að rúnta um í bílnum sínum með rör í hendinni!!
Eftir matinn horfðum við Hörður Mar á Skaupið í Hallanda með mömmu og Hilmari Sæ því Heimir og Guðrún voru að undirbúa Nýjárspartý á Gamla Bauk. Nonni kom svo líka og við horfðum á flugelda og fögnðuðum nýja árinu með litlu sjómönnunum sem voru frekar hissa á öllum þessum sprengingum og ljósum!!
Mæðgin að horfa á flugeldana í Hallanda. (fleiri myndir eru komnar í albúm)
Okkur líst bara nokkuð vel á þetta glænýja ár, mikið framundan hjá litlu fjölskyldunni og við höfum ákveðið að líta björtum augum fram á veginn!
Vonum við að þið gerið slíkt hið sama! 
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

