Blogg
23.10.2007
Fréttaauki
Húsavík í dag: Léttskýjað, suðvestan 7 m/s, 7°C
Gott er nú blessað veðrið... það er a.m.k. góður þurrkur fyirr þá sem vilja hengja út þvott! Enginn þvottur á mínum snúrum samt:)
Og þá er að fara yfir úrslit gærdagsins... ég fór með Hörð Mar í viktun því mér fannst eins og hann væri kannski að missa svefn vegna mjólkurleysis. En það virðist ekki vera málið því hann heldur sinni kúrfu alveg vel rúmlega og mældist 8.275 gr. og 71 cm!!! (vantar viku í 5 mán). Mér finnst líka vera næg mjólk til og svefninn er betri, svaf í nótt 7-1/2 tíma í einni lotu og svo aftur 2-1/2! Svo við höldum okkur við brjóstið enn um sinn:)
Og í íþróttafréttum er það helst að Völsungur fór með sigur af hólmi í viðureign sinni við KA stelpur!!
VÍÍÍííí! Þetta var nú kannski ekki glæsilegasta spil sem sést hefur, við vorum pínu lengi í gang, unnum fyrstu lotu naumlega, töpuðum næstu en unnum svo oddahrynuna örugglega! :) Bara gaman! Og fyrir ykkur sem ekki gátu komið að fylgjast með læt ég fylgja eina mynd þar sem við erum að fagna sigrinum...

ÁFRAM VÖLSUNGUR!
20.10.2007
Fussumsvei!
Jæja, október langt kominn, voðalega líður tíminn hratt!
Ég setti inn nokkrar nýjar myndir þar sem Hörður Mar en auðvitað aðal fyrirsætan!
En svona í framhaldi af því sem ég minntist á um daginn, þegar Kiya kom inn með mús þá hefur þetta endurtekið sig aðeins of oft síðan!!! Ég er eiginlega búin að missa töluna, en 2svar er ég búin að fanga mús bak við bókahillu, í seinna skiptið nennti ég ekki að ná henni lifandi og lét ryksuguna sjá um hana!! svo var ein einu sinni inní Lilju herbergi, og 1-2 hafa komið inn dauðar. Í gær var nú samt allt toppað, þegar ég kom heim var dauð mús uppá eldhúsbekk og við hliðina harðfiskpoki (tómur) og mylsna út um allt! Ég átti ekki þennann harðfiskpoka svo honum hefur trúlega verið rænt af einhverjum nágranna... (sorry) og músin fylgt með í kaupbæti!!!! og nú síðast var Kría búin að króa eina pínulitla hagamús útí horni. Ég náði í tómann Cheerios pakka og skóflaði henni upp í hann og henti henni út!
Svo voru jú tveir fuglar líka, einn dáinn en annar alveg sprellifandi og hann flaug um íbúðina dágóða stund áður en hann lenti í eldhúsflugganum þar sem ég klófesti hann og sleppti út. Þetta voru svona fuglar með rautt enni, eru það ekki Auðnutittlingar???
En sko HALLLLÓ! er þetta ekki að verða ágætis músavertíð!! Eins gott að ég er ekki hrædd við þessi grey, ég væri af göflunum gengin!
Að öðru.
Hörður Mar er farinn að taka upp á því að vakna óþarflega oft á nóttunni, ég ætla með hann í viktun á mánudaginn og sjá hvernig staðan er. Kannski þarf hann að fara að fá eitthvað meira en brjóstamjólk?!?
Annars er hann bara yndislegastur og algjör broskall!! :o)

Svo gengur bara fínt í blakinu, ég hef ekki meitt mig ennþá... 7-9-13 og er hætt að fá strengi eftir æfingar! Svo er leikur á mánudaginn, KA kemur í heimsókn og það verður fróðlegt að sjá hvernig það fer... let u know:)
Annars var ég að spá í að fá mér nýja íþróttaskó, var að rifja það upp að líklega eru skórnir sem ég er á síðan í 10. bekk eða 13 ára gamlir... GÚLP!
Jæja, ég held ég fari að leggja mig áður en Hörður Mar vaknar í 1. skiptið! Vonandi nær hann nokkrum tímum áður! :)
Attlæ bleeeess!

5.10.2007
4+ mánuðir!
Jæja tíminn líður á óeðlilegum hraða! Litli maðurinn orðinn rúmlega 4 mánaða og fer fram með hverri mínútu sem líður! Við fórum í vigtun þegar hann var 4 mán og þá var hann 67,5 cm og 7830 gr. og heldur sig á sinni kúrfu!! :) Enn er hann bara á brjósti og ég vona að mér takist að mjólka nóg fyrir hann einhverjar vikur enn! ;)
Eins og ég sagði fer honum fram á hverjum degi og núna áðan náði hann í fyrsta skiptið að velta sér af bakinu yfir á magann!!! ótrúlega duglegur, en svo lenti hann auðvitað í vandræðum þegar hann var kominn á magann og lét alveg heyra í sér.
Hann er farinn að hlæja hátt og snjallt þegar ég sprella með hann... það er bara yndislegt!
Við Nonni fórum með Hörð Mar í sundlaugina hér á Húsavík (útilaug) fyrir viku síðan en þá var svo yndislegt veður að okkur fannst ómögulegt að sleppa tækifærinu. Lilti maðurinn var svona mátulega ánægður með þetta allt saman, aðallega held ég að sundhettan hafi farið í taugarnar á honum því hún þrýsti augunum langt niður á kinnar!! En annars fannst honum þetta bara notalegt.
Hárið er enn að þynnast og ég reyni núna eftir fremsta megni að greiða yfir skallann... en það fer að verða of erfitt! Vona bara að þurrkurinn í hársverðinum fari að lagast svo sprettan batni!

Komið er nýtt albúm þar sem sjá má fleiri nokkuð skondnar myndir af litla manninum:)
Annars er allir við hestaheilsu... ég er meira að segja farin að mæta á blakæfingar með öldungunum;) ótrúlega hressandi og gaman. Við æfum 2svar í viku og ætlum að keppa eitthvað í vetur... læt ykkur vita hvernig það fer:) Aðal málið hjá mér er að fara hæfilega hratt af stað og meiða mig ekki!! 7, 9, 13.
Jæja, litli maðurinn er sofnaður fyrir nokkru og það er best að nýta tímann í smá afslöppun fyrir svefninn.
Ha det bra bra og verið góð.
Thorinsky

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 24
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 89127
Samtals gestir: 34411
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 09:14:43
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)