Blogg
23.8.2007
Leika sér eins og köttur að mús!
Kominn tími á smá uppfærslu...
Kiya kom inn um gluggann áðan og það voru óvenjul mikil læti í henni. Hún stökk beint inn á stofugólf og snarstansaði, leit á mig sigrihrósandi með MÚS í kjaftinum!! Svo sleppti hún músinni, sem btw var sprelllifandi og fór að leika sér!
Músin stökk bak við Tv-ið og þar var alveg nóg af snúrum og drasli til að fela sig í, Kiya á eftir músinni og króaði hana af inni í horni, sat þar góða stund og dáðist að nýja leikfanginu sínu! Svo varð henni á að líta undan og músin skaust burt og bak við hátalara. Ég notaði tækifærið og fór inní eldhús og náði í Cheerios pakka og veiddi músarangann í hann og sleppti út! Held hún hafi verið voða fegin að þurfa ekki að leika lengur við Kiyu!
Við Hörður Mar skruppum til Akureyrar í dag með ömmunni og móðursysturinni. Keyptum hitt og þetta sem vantaði, aðallega föt á litla manninn því hann stækkar svo hratt! Á síðasta mánudag fór ég í opinn tíma uppá heilsugæslu til að láta vigta og mæla. Hann var þá 64,5 cm og 6.950 kg. Svo förum við í 3ja mán. skoðun eftir helgi og það verður spennandi að sjá hvort hann brýtur 7 kg. múrinn!! ;)
En hann er ennþá voða duglegur að sofa á nóttunni, hefur náð síðustu 3-4 nætur 6-7 klst. samfelldum dúr og svo 1-2 klst þegar hann er búinn að drekka pínu:) Svo það er bara frábært!

Hér erum við Hörður Mar að skreppa í smá göngu! Í baksýn sést í Stapa en núna er búið að taka alla stillansa í burtu og búið að renna í gólf í kjallara og miðhæð svo fljótlega verður hægt að fara að smíða gólfið á efstu hæðinni. Þetta kemur allt saman.
En já, ég fór í klippingu í fyrradag og var orðin frekar þreytt á hárinu mínu svo ég breytti til dáltið róttækt... er núna með tæplega axlarsítt og og svona einhvernveginn koparrautt hár!!!! hehe fæ ennþá vægt sjokk við að líta í spegilinn en það er bara gaman af því! Pósta kannski mynd af herlegheitunum innan skamms.
Tékkið á nýlegu albúmi og endilega skiljið eftir ykkur ummerki í formi kvitts, limru, eða hvurs kyns kveðju þið kjósið:)
Hörður Mar er farinn að kalla á mig af leikteppinu, honum finnst (eins og Kiyu) miklu skemmtilegra að hafa einhvern til að leika sér við!!! 
Brabra,
Þórunn
6.8.2007
Spegill spegill...
Ég bara varð að henda inn stuttri færslu hér og nokkrum nýjum myndum af fallega drengnum okkar! Hann sýnir framfarir á hverjum degi held ég bara, er allur að verða styrkari og mannalegri!
En nú í kvöld voru Nonni og Hörður Mar að skoða sig í speglinum og Herði Mar fannst það svona líka gaman! Skellihló að sjálfum sér... ekkert smá sætt!!
Allavega, tékkið myndirnar í albúminu og sjáið hvort þið eruð ekki sammála mér;)
Takk fyrir góðar kveðjur stelpur! Kolla frænka! Við sendum þér bestu kveðjur og hamingjuóskir með það sem koma skal ;o) spennó!
Og Berta, við verðum að hittast áður en þið farið!
Segjum það þá!
Speglakveðjur,
Þórunn og Hörður Mar.

2.8.2007
Já blogg já!
Jæja...
Þið segið það, gott að einhver kíkkar hér inn ennþá:) ég er ekki alveg að finna bloggrytmann svona síðustu daga en svona er það bara.
Allt gengur vel með litla Hörð Mar sem stækkar og dafnar svo vel. Hann var viktaður á mánudaginn var og var þá orðinn 6.700 gr. Nú er hann 2ja mánaða og er farinn að halda höfði nokkuð vel og brosa og spjalla alveg fullt á hverjum degi! Þetta er bara gaman :o)
Hárið sprettur vel og er ekkert farið að þynnast ennþá... hihi og vonandi helst þetta bara allt á. Liturinn er þó að breytast, einhvern veginn brúnt eða næstum rauðbrúnt í rótina!
Í albúmið eru komnar nokkrar myndir frá síðustu dögum (á ennþá eftir að setja inn myndir frá bekkjarmótinu góða... þolinmæði þrautir vinnur, þið vitið!).
Læt hér fylgja eina þar sem fallegasti drengurinn er í pabbafangi og mér finnst hann svo stór strákur eitthvað á þessari mynd... ekki eins og hann sé nýorðinn 2ja mánaða;)
En það er a.m.k. alveg ljóst að hér er á ferðinni yndislegur drengur!!! 
Hafið það svo gott lömbin og skemmtið ykkur nú varlega um versló! Ekkert ruggl neitt og farið varlega í umferðinni!
Hej då!
P.s. Hörður Mar vill koma skilaboðum til ykkar:
"Guuúúúúúúúúúúúúúú" (veit ekki alveg hvað það þýðir en það hlýtur að vera eitthvað alveg mjög fallegt!!!)
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

