Blogg

27.6.2007

4 vikna!

Hejsan!

Hafið þið prófað að blogga með 4 vikna gamalt barn á öxlinni?? hihi það er soltið spes og þarfnast nýrrar tækni en gengur furðu vel:)
Lífið með litla manninum gengur vel og við erum á fullu að læra á hvort annað!

Hildur systir kom heim á sunnudaginn var! Það er svooo frábært að vera búin að endurheimta hana!! Nú talar hún líka svo fína sænsku og er komin með sænskan pojkvän, Sebastian og hann er hérna með henni í sumar! Ég fæ  þá tækifæri til að rifja upp og viðhalda sænskunni minni!

Á næsta sunnudag ætlum við að nefna drenginn "formlega". Ætlum ekki að skíra í kirkju heldur gera þetta á okkar hátt "heima" í Hallanda! Ég er búin að panta nafnaköku hjá Steina bakara og fór í dag og pantaði blómakrans sem prinsinn fær að bera þegar hann verður nefndur! :o)
Ég segi ykkur frá nafninu á sunnudaginn... lofa!

Nú er Stapi brátt að verða fokheldur! Nonni búinn að vera duglegur að mála spýturnar sem koma í kringum gluggana... margar spýtur og mikið verk!

Í vikunni voru litli maðurinn og Hilmar Sær frændi báðir staddir í Hallanda og Hilmar Sær var alveg heillaður af litla frænda! Fraus næstum þegar ég lagði hann á gólfið hjá honum þar sem hann var að leika með dót... gleymdi alveg dótinu og horfði vel og lengi á litla manninn... svo fór hann nú að skoða hann meira og meira og á endanum var hann heldur harðhentur! Ég smellti nokkrum myndum sem eru komnar í nýtt albúm af þeim frændum og fleiru!

Gleymdi næstum að segja frá því að í gær fórum við til Akureyrar, ég og þessi 4 vikna, Hildur og Sebastina og mamma. Keyptum dress fyrir nafnadaginn o.fl. Litli maðurinn var svooo góður og stilltur! Svaf báðar leiðir og næstum allan tíman í búðunum! Vaknaði smá stund þegar við fengum okkur að borða á Greifanum og hann fékk náttlega sína brjóstamjólk og lagði sig svo bara aftur!! Algjör engill þetta barn!

En jæja, nú er þessi 4 vikna farinn að heimta meiri athygli, eðlilega! Svo ég vona að þíð hafið það öll þrusu gott og öllum er frjálst að kvitta í gestabókina! kostar ekkert! ;)

Takk fyrir góðar kveðjur enn og aftur!!! Það er svo gaman hvað allir eru að óska okkur til hamingju... bara líka útí bæ, allir brosa til okkar og eru svo glaðir! :o)

LÍFIÐ ER DÁSAMLEGT!

Hér eru þeir frændur saman í Hallanda:


Jæja, látum þetta heita gott í bili.

Bestustu kveðjur,
Þórunn og sá stutti!

Skrifað 27.6.2007 kl. 20:38 af Þórunn

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.6.2007

3 vikna í dag :)

Tíminn líður sko hratt... en samt ekki!
Þetta eru búnar að vera ótrúlegar 3 vikur... merkilegasti tími lífs míns held ég bara! Fullt af tilfinningum búnar að streyma fram og aftur en aðallega bara gleði gleði gleði

Ég og litli maðurinn erum búin að fara út að labba næstum á hverjum degi enda veðrið þvílíkt gott og ekki hægt að hanga inni allan daginn. Það er samt svo fyndið hvað það er mikið fyrirtæki að skreppa í labbitúr! Í morgun byrjaði ég að undirbúa göngutúrinn kl. 11 og við vorum komin út rétt fyrir 3! Það tekur líklegast tíma að venjast því og svo verður þetta auðveldara með meiri reynslu. En það er annað sem er merkilegt, það eru nokkur verk sem ég hef ætlað mér að gera síðan ég kom heim af FSA sem ég hef bara ekkert komist í! t.d. að endurskipuleggja fataskápinn og kommóðuna... nóp! Bara ekki gerst... tíminn fer einhvern veginn alltaf í eitthvað annað... í þessa yndislegu mannveru sem líf mitt snýst nú um!! En það er bara frábært... fataskápurinn og kommóðan hlaupa ekkert frá mér

Nú er drengurinn sofnaður, sofnar yfirleitt milli 23 og 24 og sefur fyrsta lúr til 3 eða 4, svo aftur til 7 eða 8 og oftast kúrum við áfram til 10 eða 11! Svo ég kvarta ekki, fæ meira en nóga hvíld. Það er oftast á kvöldin sem hann er pínu óvær, fær einhverja kvöldkveisu í mallann og þá er eins og flest sé ómögulegt. En það líður alltaf hjá á nokkrum tímum.

Ég setti nokkrar nýjar myndir inn og eins og þið sjáið er hárið ekkert að hörfa, liturinn er þó kannski aðeins að breytast, lýsast aðeins og það er spennandi að sjá hvernig það endar! Kannski það verði rautt eins og ég var með þegar ég var lítil:) Kemur í ljós.

Við erum búin að fá fullt af heimsóknum frá því við komum heim og þökkum kærlega fyrir það! Og allar gjafirnar og kveðjurnar, vá! TAKK og RISAKNÚS til ykkar allra!!!
Þið eruð líka alveg velkomin í heimsókn! Það væri skemmtileg tilbreyting að einhver bankaði án þess að segja strax: "má ég hoppa á trampolíninu"? hihi!
Svo fengum við líka fallegt kort frá Nýja Sjálandi, TAKK Elva og Hannes!

Nú bíðum við svo spennt eftir því að helgin komi og líka að mánudagurinn komi því Hildur "móðursystir" kemur heim!! Hún er núna að sigla á skútinni Song of the whale í Miðjarðarhafinu og hjálpa þeim að rannsaka hvalina þar! Hún kemur sum sé til landsins um helgina og norður á mánudaginn held ég! Get ekki beðið eftir að hitta hana og ég veit að hún er spennt að hitta litla frænda!

Hlutirnir eru líka aftur byrjaðir að gerast í Stapa, þeir eru að verða búnir að klæða bárujárn á veggina en þakið er eftir. Ég ætla að reyna að taka myndir af því fljótlega og set þá hér inn á vefinn.
Svo er ég að velta fyrir mér hvort ég eigi að nenna að standa í Barnalandssíðu... hvað haldið þið... er þessi ekki alveg jafn góð??? Spuring.

Við erum búin að ákveða nafn og ætlum að nefna drenginn líklega 1. júlí. Það verður ekki skírt í kirkju heldur höfum við okkar eigin athöfn. Ég held ég bíði aðeins með að uppljóstra nafninu en ykkur er frjálst að koma með gisk... hehe:)

Nú er allt orðið svo hljótt hér í íbúðinni að ég held ég rúlli litla snáða bara í vöggunni inn í herbergi og við förum öll að hvíla okkur!
Ég vil aftur þakka fyrir allar kveðjurnar, gaman að sjá hvað margir fylgjast með:)

Hafið það gott, betra, best!

Þórunn og snáðinn

Skrifað 20.6.2007 kl. 23:33 af Þórunn

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.6.2007

Litli maðurinn 2 vikna!

TAKK fyrir allar kveðjurnar góða fólk! Okkur þykir mikið vænt um þær!

Já í dag eru 2 vikur frá því kraftaverkið gerðist!! Það hefur gengið ótrúlega vel, sá stutti sefur og nærist vel. Síðustu 2 nætur hefur hann náð 6 klst samfelldum svefni og svo nokkra stubba eftir það. Svo við hvílumst yfirleitt mjög vel. Það eru náttlega viðbrigði að vakna á nóttunni og skipta á bleyjum og gefa brjóst... en ég held að það venjist!
Nonni ætlaði að vera þessar 2 vikur í fæðingarorlofi en það varð ekki nema 1 vika þar sem pípararnir báðu hann að koma fyrr ef hann mögulega gæti, allt vitlaust að gera eins og venjulega! En það er gott að það er að koma helgi, þá gerum við eitthvað sniðugt saman:)

Ég setti inn slatta af nýjum myndum í albúm. Og endilega ekki vera feimin við að kvitta fyrir innlitið... við erum svo forvitin að sjá hverjir líta hér við!

Svo erum við að fara að græja heimasíðu á barnalandi... það er víst ekkert svalt að hunsa það að vera með svoleiðis:)

Jæja, nú er litli kall eitthvað að umla, ég skrifa meira seinna... endist aldrei lengi fyrir framan tölvuna þessa dagana...

Segjum það.
Þórunn og litli maðurinn

Skrifað 13.6.2007 kl. 17:00 af Þórunn

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.6.2007

Fallegasti drengurinn fæddur!

Jæja, þá er það afstaðið! Drengurinn kominn í heiminn!!!  

Takk fyrir allar góðar kveðjur allir saman!! Gaman að lesa:)

Við komum heim í gær og gekk heimferðin eins og í sögu, strákurinn svaf vært alla leiðina og það var ekki leiðinlegt að koma heim í 20 stiga hita og sól!

Nóttin var frekar svefnlítil hjá okkur öllum nema kannski Lilju sem svaf allt af sér. En snáðinn svaf frá 21-24 (sem var ekki góð hugmynd) og vakti svo til 06 í morgun, fékk sér 20 mín blund en sofnaði svo loks frá 7-11 í morgun! Vonandi gengur okkur betur að koma honum í ró í nótt!

Ég ætla ekki að hafa þetta langt núna, er búin að græja FULLT af MYNDUM í albúm fyrir ykkur og þær segja miklu meira en mörg orð! Svo kíkið á myndirnar og ég set eitthvað meira hér inn síðar.

Takk fyrir kveðjurnar enn og aftur!

Sú nýbakaða :)

Skrifað 5.6.2007 kl. 15:07 af Þórunn

Bein slóð á færslu

19 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 25
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 88999
Samtals gestir: 34384
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 04:40:13