Blogg
31.3.2007
Lukkuleg á laugardegi
Komin helgi einu sinni enn og er það vel. Við Nonni skelltum okkur á leiksýningu á Gamla Bauk í gærkvöldi en þar voru þeir að sýna Rembu. Það var mikið stuð og vel mætt, svo vel að við sátum uppi á svölum í Skipó. Það var ágætt nema hvað að bumban og rassinn voru eitthvað að mótmæla þessum hörðu stólum svo ég prófaði að standa smá eftir hlé sem var kærkomið:) Stundum væri gott ef maður gæti lagt bumbuna frá sér í smá stund, eða amk að látið Nonna passa hana... en það er víst ekkert í boði, þetta er dæmt á okkur konurnar!
Í vikunni kláruðum við að mála gluggana í Stapa frammi á Rein, mamma kom með mér og Nonna á miðvikudaginn. Ég málaði í ca. klukkutíma og þá ráku þau mig eiginlega heim en voru sjálf í 2 tíma í viðbót til að ná að klára! Dugnaður í þeim!
Það var svo verið að glerja gluggana í gær og fyrradag og vonandi verða þeir settir upp í næstu viku. Ég hlakka rosa til að sjá hvernig það kemur út. Ekkert lítið búið að pæla í þessum blessuðu gluggum!!! Enda ansi mikilvægt atriði hvað varðar útlit á húsinu.
Svona var staðan á fimmtudaginn.

Búið að setja þak og klæða hringinn með grænu:) Þessar fínu grænu plötur eru nebblega gips plötur sem koma utan á spónarplötur, gipsið er sett á út af eldvörnum þar sem það er svo stutt í næstu hús.
En já, svo eru fleiri myndir í nýju albúmi.
Setti líka inn nokkrar nýjar bumbumyndir:)
Vend þá mínu kvæði í kross og segi:
Góða helgi mina vänner:)
Bumbusinn kveður!
22.3.2007
Rok & rokk
Ja voll! Tíminn æðir áfram og mars bara næstum búinn!
Það er búið að vera svo mikið skítaveður hér á gömlu vík síðustu daga, reyndar hefur stundum verið voða fallegt gluggaveður eins og í gær og dag en alveg voðalega hvasst. Svo hvasst reyndar að þeir gáfust upp við að vinna í Stapa í gær því vindurinn stendur beint upp á bakkann. Á leiðinni í vinnuna í morgun sá ég að þeir voru að vinna og smellti myndum af köllunum:) Nú er aftur farið að hvessa svo það er spurning hvað þeir endast þarna lengi!? Eins gott að vera ekki lofthræddur þarna... ha krakkar!
En jæja, þetta gengur eitthvað hjá þeim köllunum og við Nonni ætlum að reyna að fara fram á Rein eftir vinnu í dag og mála nokkra glugga:)
Hvað segiði um að hafa húsið hvítt (ekki alveg skjannahvítt), rautt í kringum gluggana en hvítar gluggagrindur og rautt þak? Er það ekki bara málið?
Við höldum amk áfram að mála gluggana hvíta ef þið mótmælið ekki of hart!
Þá segjum við það,
Bumbulín
18.3.2007
Bumban mín í dag...

Fleiri bumbumyndir í Bumbualbúmi :)
15.3.2007
Svona er Stapi í dag
Fínt eða hvað?
Nýtt albúm komið inn! Tékk it gæs!
Og hér er svo Stapi frá sama sjónarhorni í enda vinnudags eftir kl. 17. Höllin farin að taka á sig mynd:)

14.3.2007
Stór Stapa-dagur :)

Þeir eru ekkert mikið að hika við þetta kagglarnir á Rein! Snillingar:)
En hvernig líst ykkur á??? Ég er ótrúlega spennt að sjá hvað gerist á morgun og verð örugglega eins og grár köttur með myndavélina á vappi!
Ég læt þessa mynd duga í kvöld, er orðin frekar þreytt í bumbunni og ætla að fara að halla mér! Nonni er ENN að vinna og klukkan er að verða 23! Maðurinn er brjálaður, allt of samviskusamur held ég bara;) Það er svona þegar bossinn fer bara til Kanarí í 2 vikur... hehe:)
Set inn fleiri myndir á morgun.
Haldið áfram í kvittgírnum gæs... það er svo gaman að "sjá" ykkur hér:)
natti natti
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

