Blogg
26.2.2007
Eitt eilífðar smáblóm...
En það er allt í lukkunnarvelstandi, litla krílið stækkar og stækkar og spörkin og hreyfingarnar verða alltaf kröftugri, svo var litli anginn líka með hiksta í gær... hahaha það var ótrúlega fyndið! Hikstaði örugglega í hálftíma alveg! Geyið :) En það er víst eðlilegt því nú er anginn farinn að gleypa legvatn til að þjálfa meltinguna og lungun. En vissuð þið að það væri góður möguleiki fyrir krílið að lifa af ef það kæmi í heiminn núna eftir 27 vikna meðgöngu? Það finnst mér alveg magnað! Ég ætla nú ekkert að hvetja til þess samt, okkur líður svo ljómandi vel saman alveg hreint! Ég setti inn nokkrar nýjar "bumbur" í bumbualbúmið.
Annars er nokkuð viðburðarík helgi að baki. Á fös. var bein útsending Útvarps Norðurlands frá Gamla Bauk og við mættum þar nokkur galvösk til að hlusta og skapa umhverfishljóð! Ég set hér linkinn inn þar sem hægt er að hlusta á útsendinguna, vona að þetta virki: http://dagskra.ruv.is/streaming/akureyri/?file=4345664
Nonni var svo að spila í Ýdölum um kvöldið á þorrablóti Hafralækjaskóla.
Á laugardaginn eftir að ég var búin að baka bæði speltbollur og muffins;) fékk ég pabba og mömmu með mér í lið og við fórum fram á Rein þar sem er verið að smíða gluggana í Stapa og máluðum þá! þ.e.a.s. grunnuðum hluta af þeim! Þetta eru alls 18 gluggar og það er sko heilmikil vinna við að smíða þá! Myndir af vinnuþjörkunum má sjá í albúminu! Nonni fór til Akureyrar og var því löglega afsakaður frá vinnu á laugardaginn en við fórum svo tvö í gær (sunnud.) og kláruðum að grunna alla 18! :) Það á svo eftir að grunna allar grindurnar sem koma inn í rammana sem við vorum að grunna og svo að mála allt heila klabbið!! Þannig að þetta eru nokkur handtök sem fara í glugga!
Hér fyrir neðan er útlitsteikning af Stapa eins og Per arkitekt og nágranni teiknaði! Svo þurfum við núna að fara að ákveða hvernig við ætlum að mála húsið, amk hvernig gluggarnir eiga að vera á litinn. Ég held nú að lendingin verði að gluggarnir verði hvítir með rauðum ramma og húsið hvítt og þakið rautt... en við eigum eftir að skoða það betur!

Á laugardagskvöldið snæddum við á Gamla Bauk og fórum svo á tónleika í Skipó á eftir, Park Project með Pálma Gunnars í broddi fylkingar, spiluðu jazz og blús! Alveg hreint magnaðir tónleikar... bara einhverjir þeir bestu sem ég hef farið á í Skipó held ég bara. Myndir af því eru líka í myndaalbúminu.
Þá held ég að þetta sé bara komið, fréttapakki helgarinnar kominn til skila og allir kátir! Erþakki annars?
Segjum það þá!
Bumbulína
18.2.2007
Jæja
Helgin svona í þann veginn að klárast. Þá er kominn tími á smá blogg, ég virðist alltaf finna mér tíma til þess að græja inn myndir og skrifa á sunnud. seinnipörum. Sem er gott :) Sunnudagar eru annars svo oft eitthvað daprir finnst mér, veit ekki af hverju, það er eins og maður sé bara að bíða eftir að helgin klárist í stað þess að njóta dagsins... En samt, þetta er búinn að vera fínasti sunnudagur. Nonni var að vinna í Stapa í gær og í dag, var að hjálpa rafvirkjunum að leggja rafmagn í plötuna svo það verði hægt að steypa á morgun! Það verður síðasti steypuskammturinn og restin verður svo timbur! Það hefði reyndar verið fínt að klára að leggja rafmagnið í vikunni áður en efri járnabindingin var sett en það var enginn tími hjá rafvirkjunum svo nú tók þetta helmingi lengri tíma! Hafðist samt fyrir rest:)
Í gær bauð ég ömmu Dúddu í smá bíltúr, rúntuðum um bæinn, á Gónhólinn og í Kaldbak og tókum stöðuna í Stapa. Gamla konan skemmti sér hið besta!
Svo fórum við í smá göngutúr í dag líka og röltum við á Höfðaveginum þar sem Nonni var að leika rafvirkja.
Nýjar myndir komnar inn: Stapastaðan, nokkrar lánaðar myndir frá Guðrúnu af Hilmari Sæ og svo bætti ég nokkrum í bumbualbúmið!
Svo tékk it gæs!
Takk fyrir kvittin og góðar kveðjur! Þið eruð öll snillingar og gaman að sjá að þið nennið að skoða síðuna! 
Þangð til næst, bumbus segir yfir og út og:
Áfram Eiríkur!
11.2.2007
Bumbus og Stapi
Jæja helgin búin... það hlaut svo sem að koma að því eins og venjulega! En ég er búin að hafa það rosa gott hér heima meðan Nonni er búinn að þræla og púla í Stapa bæði í dag og í gær! Kíkið endilega á myndirnar í albúminu! Svo bætti ég við nokkrum bumbumyndum í bumbualbúmið
get svo svarið það að ég held að ég sé ólétt!!! hihi 
Því miður er frostspá alla næstu vikuna held ég bara svo það verður kannski einhver bið á því að þeir nái að steypa plötuna en það er það eina sem á eftir að steypa. Restin verður svo timbur. En þeir byrja trúlega að slá upp á morgun eða hinn... það verður nú flott þegar steypuvinnan klárast.
En jæja, það er víst eitthvað takmarkaður bloggandinn í kvöld, tékkið endilega á myndunum og ekki vera of feimin við að segja ykkar skoðun!
Ég ætla núna að leggjast upp í sófa með tærnar beint upp í loft og taka því rólega það sem eftir er helgarinnar! Vona að þið gerið bara slíkt hið sama!
Segjum það lömbin mína,
Adios,
da Bumbos.
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

