Blogg
23.1.2007
Vjííí... Stapi rís!
Það var stór dagur í dag því loksins... ég meina
LOKSINS
var hægt að hefja framkvæmdir við húsið okkar! Jói á gröfunni mætti í gær og byrjaði að grafa grunninn og kláraði það svo í dag. Hlutirnir hafa svo gengið hratt fyrir sig því áður en Jói kláraði að grafa voru Sigmar og hans menn frá Rein mættir og byrjaðir að mæla og slá upp fyrir sökklunum! Ég kíkti við hjá þeim á leiðinni heim úr vinnunni áðan og smellti nokkrum myndum sem eru nú komnar í albúmið. Þar eru líka myndir frá því að Jói byrjaði að grafa í gær
. Sigmar reiknaði með að þeir steyptu í sökklana á eftir!
Þetta tekur ekki langan tíma þegar loksins er hægt að byrja... en mæ ó mæ hvað þetta skriffinsku og leyfismál er búið að taka langan tíma! Það er nærri því ár síðan við keyptum gamla Stapa og við ætluðum okkur að byrja framkvæmdir síðasta haust og þá hefði húsið orðið fokhelt fyrir jól. En það voru ýmis konar flækjur sem orsökuðu að nú snýr þetta allt öfugt: Erum að byrja að steypa í janúar og húsið verður fokhelt fyrir vorið!! Það má að mestu leiti þakka þetta vesen einum manni sem býr á Höfðaveginum (ekki alllangt frá Stapa) og flestir sem til þekkja vita hver er! Hann er víst enn að reyna að vinna í málunum fyrir okkur en við látum það ekkert trufla okkur!
Þórunn átti afmæli á föstud. var. Síðasta tuttuguogeitthvað og best að njóta meðan er. Ég bauð fjölskyldunni (Ma & pa, Heimi, Guðrúnu og Hilmari Sæ og Lilju og Stebba) í smá ammæliskaffi um kvöldið, voða ljúft:) Engin stór veisla enda verður það bara næsta ár þegar kellan kemst á fertugsaldurinn! Dísös!
Þá verður boðið til veislu í Stapa. Verðum vonandi flutt inn fyrir jól, ef ekki bara fyrr... hver veit.
Bætti smá við í bumbualbúmið... hehe allt að gerast þar! en heilsan er barasta fín. Er alveg farin að finna fyrir þessum aukakílóum, er orðin pínu framþung og alltaf verður erfiðara að finna góðar svefnstellingar! En meðan heilsan er svona góð er engin ástæða til að kvarta neitt!
Takk fyrir öll kvittin görls:) Þið eruð yndislegar!!
Áfram Ísland!!!
15.1.2007
myndir og fleiri myndir
Setti inn 3 ný albúm, frá gamlárs, nýjárs og skírn Hilmars Sæs. Svo nú getið þið skoðað og skoðað og látið sem þið hafið ekkert betra með tímann að gera! :)
Svo væri voðalega gaman að fá "kvitt" frá ykkur krúttin mín... það er alls ekkert hættulegt sko:)
Ha det bra allihopa!
Þórunn
14.1.2007
Sunnudagur til sælu
Þá eru komnar inn nokkrar bumbumyndir... get svo svarið það þetta er frekar fyndið og skrítið að vera að birta myndir af maganum á sér... en þetta er bara svo ótrúlegt kraftaverk sem er í gangi að mér finnst gaman að reyna að dokumentera það pínu
Svo er annað lítið albúm með litla sætasta frændanum, Hilmari Sæ og mömmu hans sem komu í heimsókn til okkar í gærkvöldi. Heimir er í London svo við buðum þeim mæðginum í mat! Ótrúlegt hvað hann stækkar og þroskast hratt þessa dagana og hann lék á alls oddi í gær, brosti til frænku sinnar í fyrsta skiptið
Hann er víst alltaf í mesta stuðinu á kvöldin, og stundum á nóttunni... hihi bara fyrir mömmu sína!
Ég heyrði í Hildi í fyrragær á msn en hún er núna í Afríku! Mosambique og er að gera verkefni fyrir ljósmyndaskólann sinn í Svíþjóð. Hún verður þarna í mánuð og ætla að mynda vinkonu sína frá AK við hjálparstörf. Alveg magnað hjá litlu systur, hún er ótrúlega dugleg og ég dáist alveg að henni! Bestustu kveðjur til þín Hildur mín og passaðu þig á öllum flugunum og þessum kvikindum...
En jæja, nú er bara snjókoma úti og frekar vetrarlegt. Kannski við skötuhjúin hörkum samt af okkur og skreppum í göngutúr á eftir... væri afar skynsamlegt amk:)
Klart, slut.
Bumbína
5.1.2007
Bumbufréttir!
Jæja við vorum að koma úr 20. vikna sónar... æðislega gaman, vildi að ég gæti farið í sónar amk 1. sinni í viku!
Fengum ágætar sónarmyndir sem ég ætla að skanna inn eftir helgi og setja í albúm hér á vefnum. Fengum ekki að vita kynið svo það er áfram hægt að giska og komast í verðlaunapottinn!
Annars var það óvænt ánægja að hitta Jóhönnu fyrrv. bekkjarsystur á fæðingardeildinni. Hún er nú orðin læknir og ætlar að halda áfram í kvensjúkdómalækninn! Rosalega líst mér vel á það:) Hún var svo með þegar Alexander skoðaði í bumbuna og þau töluðu alveg fullt af læknamáli sem ég skildi hvorki upp né niður í og sáu ýmislegt út úr myndunum sem mér fannst bara vera svart hvít garnaflækja... eða e-ð álíka! Mögnuð hún Jóhanna!
Á morgun er ég að fara suður til að vera við skírn litla frænda, Hilmars Sæs en hann verður skírður á sunnudaginn. Hendi því væntanlega inn helling af myndum eftir helgina, frá áramótum, skírn og bumbubúanum! En þangað til er hér ein sem var tekin í Skútahrauni um jólin. Ég og Nonni að máta Hilmar Sæ!
Segjum það og segjum líka góða helgi!

Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

