Blogg
30.12.2006
Áramótajólahvað
Ákvað að skella inn einni færslu í tilefni jóla og áramóta. Við litla fjölskyldan höfum haft það hreinlega ljómandi bærilegt um jólin í faðmi stórfjölskyldunnar. Eyddum aðfangadegi í Skútahrauni með mömmu og pabba, ömmu Dúddu, Heimi & Guðrúnu og Hilmari litla Sæ, Hildi og jólakettinum Loka. Það var sum sé margt um manninn og þvílíkt pakkaflóð hef ég aldrei séð og vona næstum því að ég þurfi ekki að sjá aftur! Þetta var hreinlega of mikið en þegar margar fjölskyldur koma saman er þetta líklega bara útkoman. Það er svo hætt við að tilgangurinn glatist þegar þetta er í svona miklum massavís. Legg til að jólagjafir verði aðeins gefnar annað hvert ár, t.d. á næsta ári verði það einungis konur sem gefa gjafir og næstu jól þar á eftir gefi bara karlar gjafir. Hvernig ætli það komi út? Ætti að minka flóðið um 50% skv. mínum útreikningum.
En við fengum dásamlegar steikur, hamborgarhrygg og rjúpur á aðfangadag, hangiket og hreindýr á jóladag hjá ömmu Hillu og afa Bjössa. Meira hangið ket í Norðurhlíð á annan og svo ætlum við að vera annað kvöld í Norðurhlíð og snæða kótilettur sem er siður hjá þeim á áramótum. matur... matur... matur... endalaust. En svona eru jólin.
Bumbubúanum heilsast vel og nú finn ég hreyfingar á hverjum degi, ótrúlega fyndið að vera með lítið kríli í maganum sem gerir trúlega lítið annað en að sofa og sparka í mig... hehe:) Við förum í 20 vikna sónar 5. jan. og ef við fáum góðar myndir ætla ég að reyna að birta þær hér:) Spennó!
Í janúar ætlum við svo trúlega að byrja að byggja... loksins poksins. Það verður vonandi áfram svona gott veður og því hægt að steypa og slá upp.
Svo er þetta síðasti dagur Jóla-Skuldar. Það er búið að vera nokkuð góð traffík og við erum ánægð með útkomuna. Vonandi að þetta verði árlegt! Berta María, Raggi og Hermann Veigar komu í heimsókn hingað í gær, ótrúlega gaman að fá þau en ég gleymdi að taka myndir eins og ég hafði ætlað mér!!! skamm Þórunn! svona er ég ótrúlega gleymin. Heldurðu að það sé Berta, svo við verðum eiginlega að hittast aftur áður en þau fara suður svo ég nái þeim á minniskubb.
Þannig var nú það... Hellingur af nýjum myndum í albúminu og svo er gestabókin alveg galopin og frjálst að rita þar það sem hugurinn býður:)
Gleðileg jól og áramót kæru vinir. Gangið hægt um gleðidyrnar á gamlárs og vonandi sjáumst við sem fyrst á nýja árinu!!
Áramótaknús, alla mina kära vänner,
Þórunn og co.
18.12.2006
Já nú er það hált maður!
Úti er búin að vera hláka síðan í gærkvöldi/nótt... og það er ekkert gaman við það! Þegar það er vetur vil ég hafa vetur, frost og snjó og þá er þetta ekkert mál. En þegar það getur aldrei verið friður með hitastig þá verður þetta lítið spennandi. Nú væri sennilega sniðugast að setja undir sig skauta og geyma bílinn heima, svell um allt!!
Það var rólegt í Jóla-Skuld í dag, mánudagur og leiðinlegt veður er ekki kaffihúsavænt á Húsavík á aðventunni. En í morgun vorum við Guðrún mágkona voða duglegar og bökuðum piparkökur! Reyndar var Guðrún búin að gera deigið í gær og á því mestan heiðurinn af þessu öllu því þetta var fyrirmyndardeig... Hef reyndar aldrei gert piparkökur áður (nema bara heima með mömmu í gamladaga) og hef því enga reynslu. En þetta tókst ljómandi og við ætlum svo að reyna að skreyta þær á morgun:o)
Ég tók mér pínu bessaleyfi og fékk lánaðar myndir af heimasíðu Hilmars Sæs og setti inn í albúm... svo tékk it gæs! :) Ég get svo svarið það að þetta er heimsins sætasti frændi! (",)
Segjum það lömbin mín!
Thorinsky
13.12.2006
Sankta Lucia
Lucia var það heillin. Ég var sum sé í Reykjavík í dag á Luciu hátíð og konsula fundi í sænska sendiráðinu. Lucia er ein af stærstu hátíðinum í Svíþjóð, þeim þykir hún jafn ef ekki meira merkileg en Midsommar (Jónsmessa). Þetta var mjög falleg stund og ég dáðist af litlu stelpunum sem börðust við það allan tíman að standa kyrrar og halda á kertinu sínu og syngja með englaröddu.
Ég ætla að prófa að setja hér inn link með með fréttinni sem birtist á mbl.is:
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1241259
Þetta var í fyrsta skiptið sem ég hitti hina sænsku konsulana og á upptökunni sjást þeir sitja við hliðina á mér á fremsta bekk. Þetta eru allir fínustu kallar, allir farnir að nálgast eftirlaunaaldurinn en frekar miklir grallarar sýnist mér svona við fyrstu kynni.
Eftir Luciuna í Norræna húsinu fórum við í sendiráðið og funduðum um stund og lukum svo sessioninu í sendiráðsbústaðnum í síðbúnum hádegisverði. Eftir það tókst mér að kíkja í Tvö líf og versla smá þar... voða gaman og skreppa smá í Kringluna og finna nokkrar jólagjafir:) Svo beint í flug og heim eftir laaaangan dag (vaknaði klukkan 5 í morgun til að fara í flug, svaf bara 3 tíma...) en það er eiginlega ótrúlegt að ég sé ekki sofnuð enn! og klukkan að verða 12! Held að það sé að koma jólafiðringur í mig (",)
En jæja. Hildur sys kemur til landsins á föstudaginn og norður á sunnudaginn... hlakka SKO til að fá hana heim í nokkra daga!!
Segjum það.
Sa-a-nkta-a-lu-u-ci-i-a...
4.12.2006
Hilmar Sær...
... er nafnið á nýjasta frændanum mínum, Hilmar Sær Heimisson. Fallegt finnst ykkur ekki! Heimir og Guðrún eru búin að gefa honum nafnið en svo verður hann skýrður í Reykjavík í janúar. Þau eru reyndar búin að vera í Reykjavík núna í nærri viku og því hef ég ekki séð litla frænda í marga daga, því verður spennandi að kíkja á hann á morgun. Örugglega búinn að stækka helling
Ég fékk leyfi hjá foreldrum Hilmars að setja inn nokkrar myndir frá þeim svo kíkið endilega á þær í albúminu. Ég varð nú bara að fá að monta mig smá af fallega frænda 
Annars er frekar rólegt hér á Kaffi Skuld í dag, fáir á ferli á mánudegi. En það var mjög líflegt í gær og þeir sem koma líst mjög vel á þetta hjá okkur, koma þá vonandi sem oftast;)
Ég er að hlusta á Jól og blíðu, jóladisk Baggalúts... mæli hikstalaust með honum sem jóladiskinum í ár! Þetta eru þvílíkir snillingar. Mjög kærkomið að hlusta á þá og hvíla sig frá jólalagaflóðinu sem er nú ekkert alltaf það vandaðasta sem maður heyrir. Ekki að Baggalútur sé eitthvað eðal popp, en þeir koma mér alltaf til að brosa! 
Við erum búin að standa í smá stappi heima í Grundargarði, nebblega að skipta um herbergi! Lilja Björg var í stærra herberginu en nú fengum við að skipta við hana svo loksnins er hægt að ganga þokkalega um:) áður var bara hægt að henda sér upp í rúm á einni hlið, en nú er þetta allt annað! Þetta kostaði það að það þurfti heilmikið að taka til og henda drasli, sem var sko alveg kominn tími á!! og jólahreingerningin gerð í leiðinni í báðum svefnherbergjunum. En það besta við þetta allt saman er að þetta var gert á laugardaginn og ég var jú að vinna frá þrjú til tíu! En við vorum byrjuð um morguninn og svo kom mamma og hjálpaði Nonna við að klára dæmið! Lilja græddi líka slatta á þessum skiptum, fær nýtt rúm sem Nonni er einmitt í þessum skrifuðum að setja saman og rúmið er með himnasæng sem mér skilst að sé það flottasta í dag, "svona prinsessurúm"
En já, hér er sum sé bara rólegt í Skuldinni, ótrúlega fallegt veður og skil ekkert í fólki að fá sér ekki hressigöngu nú eftir matinn og kíkja í Jóla-Skuld! Ég horfi yfir höfnina út um gluggan sem er alveg spegilslétt. Ekki dónalegt útsýni!
Jæja þá í þetta sinn, ætla að halda áfram að hlusta á Baggalút,
"komdu með mér í gamlárspartý, gamlárspartý, gamlárspartý..."
Klart slut,
Torun
1.12.2006
Jólaskuld...
...er eitthvað sem líklega flestir kannast við! Og nú fer í hönd sá tími þar sem jólaæðið byrjar og allir "þurfa" að kaupa hitt og þetta fyrir jólin, tala nú ekki um allar jólagjafirnar sem þurfa helst að vera aðeins flottari og aðeins dýrari en í fyrra!
En ég hef nú ákveðið að tækla jólaskuldina aðeins öðruvísi í ár en undanfarin jól. Nú ætla ég að þéna peninga á jólaskuldinni, nefnilega með því að vinna í Jóla-Skuld! Café Jóla-Skuld er samvinnuverkefni Norður-Siglingar og Heimabakarís og er ég eini starfsmaðurinn eins og er. Við ákváðum að gera tilraun til að lífga upp á jólastemminguna í miðbæ Húsavíkur og hafa opið á kaffihúsinu í desember. Þar er boðið upp á kaffi og kruðerí í anda jólanna. Fyrsti opnunardagurinn er í dag og mér virðist sem þetta ætli að mælast vel fyrir, búin að vera fín traffík það sem af er degi
og vonandi verður það eins um helgina. Í myndaalbúminu er 2 myndir af Jóla-Skuld sem birtust í Skarpi í dag. Gæðin ekkert 100% en ég set inn fleiri myndir þegar ég verð búin að muna eftir myndavélinni og smella nokkrum góðum.
Það gerðust stórmerkilegir hlutir á þriðjudaginn var... nema hvað að við Nonni fengum LOKSINS byggingarleyfi á lóðinni okkar!!! Það tók ekki nema nokkra mánuði... þeir eru ekkert að tvínóna við hlutina hjá bænum! Ég er alveg hætt að botna í þessu máli og er bara dauðfegin að þetta er í höfn. Nú er næsta mál á dagskrá að tala við smiðinn og sjá hvort hann vill byrja núna fyrir jólin eða hvað. Það verður mikill léttir þegar þetta verður komið af stað!
Ég læt ykkur svo vita þegar þið megið koma með hamarinn og sögina.
Læt þetta gott heita í bili en heiti því að nú líður ekki mánuður í næstu færslu þar sem ég verð með tölvuna í Jóla-Skuldinni og því auðvelt að henda einhverju inn þegar tími gefst. Tékkið á myndunum af Jóla-Skuld og svo sjáumst við þar með bros á vör! 
Jóla-Þórunn
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

