Blogg

3.6.2006

Sjúbbídúúú

Júní er kominn svona fínn og flottur og snjóa tekið að leysa. Það var náttlega brandari að fá heila viku með snjókomu og viðbjóði í maí! Við hlógum samt ekkert svo mikið þar sem við misstum heila viku úr á sjónum og margir vonsviknir ferðamenn fóru sneyptir og snauðir frá Húsavík án þess að sjá nokkurn einasta hval! Þetta var líka svo mikil synd þar sem maí hafði verið svo frábær, fullt af hnúfubökum og bara mikið líf á flóanum. En strax eftir bræluna byrjaði fjörið aftur og við höfum séð hnúfubaka í nánast hverri ferð og stundum upp í 6 stykki í einu! Nú svo var það í einni ferðinni að það sáust 3 Búrhvalir... höfum aldrei áður skoðað búrhvali heldur bara séð blástur frá þeim í fjarska. Þeir geta nebblega kafað í um klukkutíma og því erfitt að hitta á þá þegar þeir ákveða að koma upp og anda! En ég var því miður ekki með í ferðinni, týpískt, en sögurnar frá Captain Rolf voru alveg flottar sko.

Nú eins og sést hér á undanförnum færslum erum við búin að rífa húsið okkar en nú erum við að láta teikna fyrir okkur, Per arkitekt og tilvonandi nágranni okkar er að munda pannann og búinn að skila okkur fyrstu drögum. Þetta verður sum sé kjallari hæð og ris og mér líst bara nokkuð vel á fyrstu teikningar. Við byrjum svo vonandi að byggja í haust þegar öll leyfi og þess háttar ves  eru komin í höfn.

Á dögunum var svo haldið upp á 10 ára afmæli Lilju Bjargar, henni fannst þetta að sjálfsögðu mikið merkis- og stórafmæli og bauð 8 bekkjarsystkinum sínum en hátt í 40 fullorðnum og við Nonni máttum gjöra svo vel að græja veitingar fyrir allt liðið! En sem betur fer er nú slatti af ömmum í kring og það var bakað á 4 stöðum í bænum fyrir viðurðinn. Þetta heppnaðist líka svona ljómandi vel og sem betur fer var gott veður þennan dag svo krakkarnir voru mikið úti að leika sér. Í myndaalbúminu eru myndir en þar vantar náttúrulega aðal afmælisgjöfina sem kom nokkru eftir afmælið... en það var TRAMPOLÍN! Við Nonni, og pabbi og mamma gáfum henni rosa flott trampolín og það er líka búið að vera í stanslausri notkun síðan! Oft á dag er bankað: ,,máum við hopp'á tþþampolínþinnu"?? Allir krakkarnir í gettóinu hafa nú samastað eftir skóla og allir ánægðir... já svona oftast a.m.k. :)

En það voru fleiri sem áttu afmæli í maí, Nonni minn varð þrítugur þ. 29. og ég ákvað að splæsa í almennilegt hjól handa kallinum! Hann hefur líka ekki stoppað síðan... alltaf úti að hjóla, alveg eins og krakkarnir á tþampólíninu... hehe kannski ekki alveg en bíllinn hefur a.m.k. ekki verið mikið hreyfður í maí því ég fer allt á hjóli hér innanbæjar:)

Það er búið að vera mikið að gera hjá Norður-Siglingu í vor, talsverðar framkvæmdir í gangi eins og alltaf og helst er að nefna Kaffi Skuld. Skuld er gamalt hús sem var byggt um 1920 hér á Húsavík og átti að fara að rífa en við ákváðum á síðustu stundu að fá að "kaupa" húsið og fluttum það fram á Rein þar sem smiðirnir þar dubbuðu það upp, klæddu og gerðu upp að utan. Svo fluttum við það aftur til Húsavíkur og settum það á lóðina fyrir aftan Gamla Bauk upp á nýbygginguna sem byggð var síðasta vor. Þar er meiningin að Steini bakari reki kaffihús/konditori: Kaffi Skuld. Ég setti í albúmið nokkrar myndir frá því þegar verið var að hífa húsið á sinn stað og einnig eitt myndband. Planað er að Kaffi Skuld verði opnað seinni hlutann í júní.

Kisurnar hafa það ósköp gott, ánægðar með að júní virðist ætla að verða snjóléttur! Þau hafa mér til mikillar ánægju alveg látið það vera að koma með fugla inn með einni undantekningu þó. En það var sólskríkja sem var á stofugólfinu einn morguninn en hún hefur örugglega króknað í snjókomunni um daginn því það sást ekkert á henni og hún var alveg pinnstíf með fæturnar beint úr í loftið. Greyið.

Á myndinni að neðan er Kría en hún hefur ákaflega gaman af hvers kyns plastpokum og töskum og skríður inn í allt sem hægt er að skríða inn í! Hér stökk hún ofan í rusladallinn þegar ég var nýbúin að skipta um poka og fannst tilvalið að leggja sig smástund þar:) Yndislegir þessir kettir og ef ég gæti ráðið þá myndi ég vera köttur svona ca. einu sinni í viku... líklega á mánudögum!

Jæja þá, læt þetta duga í bili.

Gyða mín, ég er alltaf á leiðinni í heimsókn... þetta tekur allt sinn tíma og ég ætla ekki að lofa neinu með heimsóknir því það hefur ekkert endilega gefist svo vel í gegnum tíðina. Ég kem þó örugglega fyrr en síðar! ;o)

Hafið það gott lömbin mín og passið ykkur að sólbrenna ekki!

Þórunn

Skrifað 3.6.2006 kl. 14:58 af Þórunn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 43
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 88806
Samtals gestir: 34330
Tölur uppfærðar: 12.3.2010 14:54:11