Blogg
18.3.2006
Í fantafíling
Jæja... það er víst alveg ljóst að ég fæ engin bloggverðlaun en batnandi bloggara er best að lifa!
Það hefur nú eitthvað dregist að við Nonni höfum fengið að kaupa litla húsgarminn á bakknum af bænum. Það kom í ljós að fyrir um 35 árum var gerður lóðaleigusamningur varðandi öll húsin yst á bakkanum þar sem segir að:
?Lóðin er aðeins fyrir það hús er á lóðinni stendur nú og má eigi byggja annað hús á lóðinni. Þegar núverandi hús er ónýtt, fellur þessi lóðaleigusamningur úr gildi, en lóðin verður þá skv. skipulagi grænt svæði?.
EN síðan þetta var hafa verið samþykkt 2 aðalskipulög þar sem svæðið er skilgreint sem íbúðasvæði og því frjálst að rífa og byggja að vild. Það þarf því að fella þennan gamla lóðaleigusamning úr gildi áður en hægt er að skrifa undir kaupsamning. Þá getum við mætt með kúbeinið og byrjað að rífa en þurfum að bíða eftir að samþykkt verði deiluskipulag fyrir svæðið áður en við fáum byggingaleyfi. Svo það má segja að bærinn hafi gleymt að vinna heimavinnuna sína þegar þeir auglýstu húsið til sölu og í leiðinni byggingaskilmála fyrir nýbyggingu á lóðinni... en þetta kemur allt saman, með kalda vatninu líklega:)
Við höfum ákveðið að kaupa okkur "nýjan" bíl!!! Gamli súbbinn er orðinn frekar þreyttur svo þegar við fengum ótrúlega gott tilboð um kaup á 2003 módel bíl, gátum við ekki ekki tekið því! :) Þetta er voða voða flottur eðal fólksbíll en ég ætla ekki að upplýsa það hvaða/hvernig bíll þetta er fyrr en við fáum hann afhentan sem verður vonandi innan fárra vikna... fylgist með!
Nonni hefur líka ákveðið að fá sér nýja vinnu... Þó að Norðlenska sé að græða fullt af peningum og fyrirtækinu gangi vel sem aldrei fyrr eru vaxtamöguleikar einstaklingsins innan fyrirtækisins ekki svo frábærir. Nonni fór því til píparanna hjá Vermi og þeir urðu þetta líka glaðir að heyra að hann hefði áhuga á að vinna hjá þeim og réðu hann nánast á staðnum! Uppúr því samdist þeim Sigga píp um að Nonni kæmi til þeirra sem fyrst og meira en það, hann fer bara beint á samning og ætlar að fara að læra pípulagningar!! Það verður vonandi nóg að gera fyrir pípara á Víkinni á næstu árum ef þeir færa ekki álverið okkar á Suðurnesin!!! Urrr!!! En það er samt sem áður hrikalega mikill áhugi fyrir lóðum í bænum, t.d. bárust 150 umsóknir um 3 lóðir í bænum við nýja götu í suðurbænum! Ég held nú að fólk sé aðeins að missa sig en samt er þetta mjög spennandi og ég vona bara að þeir byggi fleiri götur svo að þeir fjölmörgu brottfluttu Húsvíkingar sem hafa áhuga á að koma heim hafi eitthvað spenandi að moða úr.
Ég er ekkert að fara að skipta um vinnu, er áfram hjá Siglingunni og þar eru nóg verkefni þó að siglingarnar séu ekki byrjaðar. Ég hef unnið m.a. í Garðarshólma verkefninu okkar sem og öðru til undirbúnings fyrir sumarið. Nú fara kallarnir svo að undirbúa bátana, Nonni fór einmitt snemma í morgun að hjálpa þeim að taka Bjössa Sör í upp í slipp! Slippurinn hefur ekki verið virkur í marga mánuði því þeir sem ráku hann síðast fóru víst á höfuðið og bærinn hefur ekki gert mikið í málinu. Svo það verður nú úr að Norður-Sigling tekur slippinn að sér, a.m.k. til að gera hann starfhæfan svo að við getum tekið bátana okkar þar upp.
Jæja þá... þetta fer þá að verða fínt bara í bili held ég! Ég ætla að fara að njóta þessa laugardags og vona ég að þið gerið slíkt hið sama! :) Laugardagur til lukku ekki satt!!
Krúttin mín, kvittið svo í gestabókina mína... plíííís!! Ég lofa að það verður ekki notað gegn ykkur:) OK?
Yfir,
Þórinsky
Um mig
Nafn:
Þórunn HarðarFarsími:
8676077Tölvupóstfang:
thorunn@nordursigling.isMSN netfang:
tota1978@hotmail.comHeimilisfang:
Höfðavegur 15Staðsetning:
HúsavíkTenglar
- Elsa María
- Bekkjarmót 1978!
- Berta María í DK
- Elva á Ak
- Guðrún E. Jak & fjölskylda
- Hilda á Húsavík
- Hildur systir
- Himmi
- Huld
- Hulda Ösp og fjölsk
- prinsinn hennar Bertu
- Maren Eik
- Sara hafmeyja
- Sigga Hrönn
- Sólveig
- Þórdís Edda
- gamla marinus síðan
Eldra efni
- 2010
- September (1)
- Ágúst (2)
- Apríl (3)
- Janúar (1)
- 2008
- Desember (2)
- Október (1)
- September (1)
- Ágúst (1)
- Júlí (1)
- Júní (1)
- Maí (2)
- Apríl (3)
- Mars (3)
- Febrúar (2)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (2)
- Nóvember (3)
- Október (3)
- September (2)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (4)
- Maí (5)
- Apríl (3)
- Mars (8)
- Febrúar (3)
- Janúar (4)
- 2006
- Desember (5)
- Nóvember (2)
- Október (1)
- Ágúst (3)
- Júlí (2)
- Júní (1)
- Apríl (3)
- Mars (1)
- Febrúar (2)

