Blogg

19.1.2006

Hún á afmæli í dag...

♫♪♫♪ ♪♫♫ ♫♪♪♪♫♪ ♪♪♫♪♪

... hún á afmæli í dag, hún á afmæli' hún

♫♪♫♪ ♪♫♫ ♫♪♪♪♫♪ ♪♪♫♪♪

HÚN Á AFMÆLI Í DAG!   

♫♪♫♪ ♪♫♫ ♫♪♪♪♫♪ ♪♪♫♪♪

 

 

 

Fleira var ekki í fréttum í dag.

Eigið góðan dag! ;)

 

Thorinsky Rassarova

Skrifað 19.1.2006 kl. 11:51 af Þórunn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.1.2006

Gleðilegt ár allir ...

... og takk fyrir liðin! :)

Nú birtist fyrsta færslan á glænýju ári... kannski þær verði eitthvað fleiri;) fylgist bara spennt með!

Nýja árið fer bara þokkalega af stað, er reyndar með einhvern kvefskít og fór heim úr vinnunni í dag en verð vonandi orðin hressari á morgun. Í vinnunni er ég að vinna að Garðarshólmaverkefninu okkar og eins og er snýst það um að útbúa viðskiptaáætlun og ýmsar umsóknir svo það er mest tölvu- og fundavinna. En það er fínt að blanda þessu svona saman, svo er meiri hamagangur á sumrin:)

Ég, mamma og Kristrún skelltum okkur í Rope yoga í gær og lofar það bara góðu. A.m.k. er ég með strengi í maganum á stöðum sem ég hef ekki fengið áður! vona bara að ég komist í 2. tímann á morgun. En þetta er alveg sniðugt fyrir þá sem vilja styrkja sig, sérstaklega magavöðvana og þar með svo margt annað!

Já svo eru komin 3 ný albúm inn í Myndaalbúmið! tékk it át! Áramótin voru alveg voða skemmtileg, fjölskyldan samnaðist saman í Hallanda og Árni og krakkarnir komu líka þar sem Line var mjög fjarri góðu gamni þar sem hún skrapp til Afríku til að læra á Marimba trommur o.fl. Örugglega frábært ævintýri það!:) Svo vantaði líka Hildi li'l sys sem var á Ak. En það var mikið fjör og mikið sprengt, sérstaklega neyðarblys og sólir úr bátunum... alveg margir haldapokar af srengiefni þar og allt þaut það upp! Blysin lýstu upp Hallanda og höfnina hvað eftir annað og ég er viss um að Hallandi hefur sést vel frá suðurbænum! Svo sátum við lengi og spjöllunum en við Nonni skelltum okkur svo á ball og þar hitti ég Bertu mína:o) sem var alveg snilld, rifjaði upp margar góðar stundir á "djamminu" á Húsavik;) hehe!

En jæja, ég ætla að halda áfram að hætta að vera lasin!

Hafið það sem best og munið að betra er að fara á kostum en taugum;)

Þannig var nú það.

Strengdi engin áramótaheit, gleymdi því hreinlega því frá því um 3 mín í 12 og þar til um 3 mín yfir vorum ég og Nonni að basla við það að kveikja á stjörnublysi með kveikjara til að kveikja á flugeldnum okkar sem átti að fara upp síðustu sekúndurnar 2005! Nú, þetta gekk hálfbrösulega og því mátti ég engan tíma missa þegar rakettan loksnins fór upp til að drífa í að knúsa alla á nýja árinu!
Annars hef ég ekki mikla trú á áramótaheitastrengingum. Á alveg nóg með að vinna að markmiðum mínum dags daglega;)

Skrifað 10.1.2006 kl. 21:38 af Þórunn

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 65
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 89111
Samtals gestir: 34403
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 13:12:50